Hallast frekar að því að nýta orkuna hér en að flytja hana út

Umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra tekur ekki vel í hugmyndir um orku­útflutning með sæstreng og segir Íslendinga frekar eiga að nýta orkuna til verðmæta­sköpunar hérlendis í viðtali í jólablaði Vísbendingar.

Guðlaugur Þór Þórðarson, nýskipaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, nýskip­aður umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Samkeppnis­forskotið sem Ísland hefur í að framleiða ódýra og vistvæna raforku ætti frekar að vera nýtt til verðmæta­sköpunar innanlands frekar en raforku­útflutnings með sæstreng. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, nýskipaður umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, í ítarlegu viðtali í jólablaði Vísbendingar, sem kom út í gær.

Samkvæmt Guðlaugi hafa helstu útflutnings­greinar landsins náð samkeppnis­forskoti vegna aðgangs að grænni og hagkvæmri orku, en hann segir vörur með minna kolefnis­fótspor víða vera verð­mætari og hafa auðveldara aðgengi að markaði. Í því tilefni nefnir hann sérstak­lega sjávar­útveginn, sem stefnir að grænum orku­skiptum í náinni framtíð. „Og ef við værum ekki að brenna jarðefna­eldsneyti við veiðarnar, þá skilar það sér vonandi í því að fiskurinn verði verð­mætari vara,“ segir ráðherrann.

Landkynning fólgin í grænni orkuframleiðslu

Sömuleiðis telur hann að það væri mikil land­kynning fólgin í því ef Ísland yrði í fremstu röð landa án jarðefna­eldsneytis, sem gæti gefið ferða­þjónustunni samkeppnis­forskot á önnur lönd. „Ég vil trúa því að það verði sérstök verðmæti fólgin í því,“ bætir hann við.

„Mín fram­tíðarsýn er sú að þeir sem hingað komi ferðist um landið á rafbíl, njóti á ferðalagi sínu aðstoðar vist­vænnar ferða­þjónustu og kynnist okkar ósnortnu víðernum. Þetta myndi fela í sér mikla og jákvæða land­kynningu sem innistæða er fyrir.”

Hægt er að lesa jóla­blaðið í heild sinni, sem inni­heldur fjölda greina frá sérfræðingum um lofts­lagsmál, umhverfis­vernd og grænum lausnum, með því að smella á myndina hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár