Skilmálar Stuðnings-Kríu mæta gagnrýni

Stuðningslán til sprota­fyrirtækja hafa mætt gagnrýni vegna harðra skilmála, auk þess sem afleiðingar þeirra eru ekki í samræmi við yfirlýsta stefnu stjórn­valda. Nýsköpunar­ráðuneytið segir það hins vegar rétt­læt­an­legt þar sem um neyðar­aðgerð var að ræða.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir nýsköpunarráðherra
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Stuðnings-Kría, sem er lán á vegum atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytisins til sprota­fyrirtækja, hefur mætt gagnrýni úr nýsköpunar­umhverfinu vegna breyti­réttar sem gæti gert ríkið að hluthöfum í slíkum fyrir­tækjum. Eignar­hlutur hins opinbera í sprota­fyrirtækjum er ekki í samræmi við Nýsköpunar­stefnu ríkisins, en ráðuneytið telur úrræðið þó vera réttlætanlegt þar sem það var viðbragðs- og björgunar­aðgerð vegna uppnáms á markaði í kjölfar útbreiðslu kórónu­veirunnar.

Tímabundin aðgerð vegna COVID-19

Nýsköpunar­ráðuneytið kynnti Stuðnings-Kríu í byrjun júlí­mánaðar, en úrræðið felur í sér að hið opinbera mun tíma­bundið veita lán til sprota­fyrirtækja sem mótframlag við aðra fjár­festingu í þeim. Nýsköpunar­sjóður atvinnu­lífsins (NSA), sem er í eigu ríkisins, hefur umsjón með lánunum og getur úthlutað allt að 755 milljónum króna í þessi lán.

Í auglýsingu ráðuneytisins á láninu segir að það sé veitt til að bregðast við vanda lífvænlegra sprota­fyrirtækja sem lentu í rekstrar­vanda vegna COVID-19 heims­faraldursins.

Býður upp á „misnotkun“

Samkvæmt skilmálum lánsins eru þau til þriggja ára og bera tíu prósenta vexti, auk þess sem kröfu­hafar hafa 20 prósenta afslátt á hlutum í fyrir­tækinu. Lánið inni­heldur einnig svokallaðan breyti­rétt, sem gerir kröfu­höfum kleift að kaupa hlut í fyrir­tækið á einni krónu á hlut ef lánið greiðist ekki að fullu innan þriggja ára.

Samtök sprota­fyrirtækja gerðu athuga­semdir við breyti­réttinn í minnis­blaði sem sent var á Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, nýsköpunar­ráðherra, í síðasta mánuði. Samkvæmt samtökunum er ákvæðið til þess fallið að skapa verulegt valda­ójafnvægi á milli skuldara og kröfuhafa, auk þess sem hún skapar óeðlilega hvata fyrir kröfuhafa sem gæti hagnast mikið á því að lánið yrði ekki greitt upp.

„SSP telur ákvæðið fara langt út fyrir að gera úrræðið „óþægilegt“ fyrir sprota­fyrirtæki, heldur sé beinlínis verið að bjóða þeim fyrir­tækjum, sem þurfa hvað mest á aðstoð að halda, kjör sem bjóða upp á misnotkun,“ segir einnig í minnis­blaðinu.

Aðrar heimildir Kjarnans taka í sama streng og segja breyti­rétt á kaup­genginu 1 geta auðveldlega leitt til þess að kröfu­hafar eignist allt félagið í sumum tilvikum.

Helga Valfells, stofnandi fjár­festingar­sjóðsins Crowberry Capital, segir að sér hafi fundist þessir skilmálar frekar harðir og óvenju­legir og að þeir geti jafnvel haft neikvæð áhrif á framhalds­fjár­festingu í félaginu. Því hafi sjóðurinn ekki hvatt fyrirtæki í þeirra eigna­safni til að nýta sér þetta úrræði, heldur hafi hann frekar lagt áherslu á beina fjár­festingu hluthafa.

Segir ákvæðið eðlilegt

Að mati nýsköpunar­ráðuneytisins eru skulda­bréf með breyti­rétti hins vegar mjög algeng fjár­mögnunar­leið fyrir sprota- og nýsköpunar­fyrirtæki. „Þau eru notuð vegna þess að verðmat sprota­fyrirtækja á fyrstu stigum er erfitt og í besta falli ágiskun þar sem mikil óvissa er um þróun slíkra fyrir­tækja á fyrstu stigum,“ kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans.

Enn fremur bætir ráðuneytið við að ákveðið hafi verið eftir ráðgjöf frá lögfræðingum að fastsetja skipti­gengið hjá kröfu­höfunum á 1 krónu á hlut til að „minnka líkur á misnotkun.“ „Von ráðuneytisins er að sjálfsögðu sú að rekstur sprota­fyrirtækja gangi það vel að þeim takist að greiða lánin upp eða sækja sér nýja fjár­mögnun á næstu þremur árum.“

„Vel réttlætanlegt“ ósamræmi við opinbera stefnu

Með ákvæðinu um breyti­rétt gæti farið svo að ríkið eignist beinan hlut í fleiri sprota- og nýsköpunar­fyrirtækjum. greiði þau ekki upp lánin sín að fullu. Þetta er ekki í samræmi við Nýsköpunar­stefnu ríkis­stjórnarinnar, þar sem kemur fram að ríkið eigi ekki að jafnaði að fjárfesta beint í slíkum fyrir­tækjum.

Nýsköpunar­ráðuneytið telur þó úrræðið sitt vera „vel réttlætanlegt“ í ljósi þess að um tíma­bundna björgunar­aðgerð var að ræða:

„Stuðnings – Kría er aðgerð sem til varð vegna þess ástands sem skapaðist á fjármála­mörkuðum í vor vegna áhrifa Covid-19 en fjár­mögnun margra sprota- og nýsköpunar­fyrirtækja komst á þeim tíma í mikið uppnám með litlum fyrirvara,“ sagði ráðuneytið. „Í þessu tilfelli þóttir það vel réttlætanlegt þó það falli ekki að öllu leyti að stefnu og fram­tíðarsýn ráðuneytisins enda um einskiptis neyðar­aðgerð að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár