Nýr umboðsmaður ætlar í leyfi frá HÍ og vonast eftir meira fé frá pólitíkinni

Nýr umboðs­maður Alþingis er enn að ljúka síð­ustu verk­unum við laga­deild Háskóla Íslands. Í bili. Hann segir við Kjarnann að stofn­unin þurfi meira fé til að geta gert annað og meira en að „standa við færi­bandið“ og vinna úr kvört­unum.

Skúli Magnússon var boðinn velkominn til starfa af þeim Steingrími J. Sigfússyni forseta Alþingis og Rögnu Árnadóttur skrifstofustjóra þingsins fyrr í mánuðinum.
Skúli Magn­ús­son var boð­inn vel­kom­inn til starfa af þeim Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis og Rögnu Árna­dóttur skrif­stofu­stjóra þings­ins fyrr í mán­uð­inum.

Skúli Magn­ús­son, nýr umboðs­maður Alþingis, gerir ráð fyrir því að óska eftir leyfi frá starfi sínu sem dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands á meðan hann gegnir störfum umboðs­manns. Hann segir við Kjarnann að þessa dag­ana sé hann að klára síð­ustu verk sín í bili sem akademískur starfs­maður, til dæmis yfir­lestur loka­rit­gerða. Það sé gert í sam­ráði við for­seta Alþingis.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til umboðs­manns varð­aði það hvort hann hygð­ist láta af starfi sínu við laga­deild Háskóla Íslands, og ef ekki, hvernig yrði þá tekið á málum sem kæmu inn á borð umboðs­manns og vörð­uðu Háskóla Íslands.

Skúli er um þessar mundir í 20 pró­sent starfs­hlut­falli við laga­deild­ina. Hann gerir ráð fyrir að óska eftir leyfi, sem áður segir, og telur það svara spurn­ingum um hæfi sitt til þess að fjalla sem umboðs­maður um mál­efni Háskóla Íslands almennt.

Hann seg­ist þó ekki úti­loka að verða van­hæfur til þess að fjalla um mál sem varði laga­deild HÍ af ein­hverjum öðrum ástæðum, til dæmis vegna kunn­ings­skapar við þau sem þar starfa. Í slíkum til­fellum reiknar hann með að það yrði settur umboðs­maður til að fara með málin. Þetta segir Skúli að sé „all­venju­legt“ og dæmi séu til úr for­tíð um að kos­inn umboðs­maður hafi ekki talið rétt að hann færi með ein­stök mál af ein­hverjum ástæðum.

Kjarninn spurði Skúla um hvernig manna­ráðn­ingum hjá emb­ætt­inu yrði háttað, nú þegar nýr umboðs­maður hefur tekið við. Samkvæmt lögum um umboðs­mann Alþingis þarf ekki að aug­lýsa störf hjá umboðs­manni, þvert á það sem almennt ger­ist hjá hinu opin­bera.

Umboðs­maður Alþingis hefur það meðal ann­ars í verka­hring sínum að fylgj­ast með því hvort stjórn­sýslan ráði í störf með réttum hætti sam­kvæmt lögum um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna. Fljótt á litið gæti því ein­hverjum þótt skrítið að stofn­unin hafi ekki kvöð um að aug­lýsa sín eigin störf.

Skúli segir í sam­tali við blaða­mann að hann hafi ekki gert það upp við sig hvernig hann muni halda á manna­ráðn­ingum sem umboðs­maður, en segir þó að mjög hæft starfs­fólk hafi verið ráðið til starfa hjá stofn­un­inni til þessa og að það sé ekki svo að manna­ráðn­ingar umboðs­manns séu án eft­ir­lits.

„Við þurfum að standa þing­inu reikn­ings­skap,“ segir umboðs­mað­ur­inn, sem reiknar með því að ef ein­hver skringi­leg vinnu­brögð væru við­höfð í manna­ráðn­ingum stofn­un­ar­innar þyrfti hann mögu­lega að svara fyrir það frammi fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins eða for­sætis­nefnd.

Reyndar sé staðan hjá umboðs­manni þannig þessa dag­ana að það sé mjög lítið svig­rúm fyrir ráðn­ingar – og blaða­maður ætti ef til vill frekar að spyrja hvort það þyrfti að fækka starfs­fólki hjá stofn­un­inni og hvernig yrði þá staðið að því.

„Eins og staðan er í dag lítur þetta ekk­ert sér­stak­lega vel út,“ segir Skúli og bætir við að fjár­veit­ingar til stofn­un­ar­innar hafi ekki tekið mið af auknum fjölda mála.

Tryggvi Gunn­ars­son for­veri Skúla í emb­ætti kom því skil­merki­lega á fram­færi á síð­asta ári að geta stofn­un­ar­innar til þess að sinna frum­kvæð­is­at­hug­unum væri í algjöru lág­marki. Skúli segir að sú sé vissu­lega raunin.

„For­sendur eru breyttar með til­liti til fjölg­unar mála og launa­skrið hefur orðið meira en gert var ráð fyrir.“ Umboðs­maður nefnir að kvört­unum sem ber­ast emb­ætt­inu hafi fjölgað sem nemi um 10 pró­sentum frá fyrra ári á fyrstu mán­uðum þessa árs. Og þeim fjölg­aði sömu­leiðis í fyrra miðað við árið 2019, þannig að staðan er tölu­vert önnur en núver­andi fjár­veit­ingar gera ráð fyrir. Þá hafi ábend­ingum sem leitt geti til frum­kvæð­is­mála fjölgað.

Hann segir að eft­ir­lit, sem stofn­unin sinnir með frels­is­sviptu fólki sam­kvæmt við­auka við pynt­inga­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, hafi tekið meiri mann­afla og fjár­muni en gert hafi verið ráð fyrir. Sá þáttur starf­sem­innar sé í raun und­ir­fjár­magn­aður.

Eins og að „standa við færibandið“

Skúli tók við sem umboðs­maður í lok apríl. Hann segir að það sé „mjög óheppi­legt“ að stofnun eins og umboðs­maður Alþingis sé bundin við það, vegna fjár­skorts, að fjalla ein­ungis um kvart­anir sem ber­ast inn – sem hann líkir við það að „standa við færi­bandið“.

„Ég á eftir að eiga fundi núna með Alþingi og svo verður gengið frá frum­varpi til fjár­laga síðar í sumar eða í haust. Ég vona að við fáum ein­hverjar und­ir­tektir við okkar sjón­ar­miðum og það verði við­brögð við meiri fjölgun mála en gert hefur verið ráð fyrir,“ segir Skúli.

Hann segir ótækt að láta afgreiðslu kvart­ana tefj­ast til þess að verja meiri tíma í frum­kvæð­is­at­hug­anir. Skyldur stofn­un­ar­innar séu umfram annað við þá sem koma inn með kvart­anir og ekki sé hægt að gefa borg­urum sem til leiti umboðs­manns þau svör að það sé ekki tími til að sinna málum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár