Forstjóri Torgs segir að Fréttablaðið muni í framtíðinni hætta að koma út á prenti

Lestur Frétta­blaðsins var um 60 prósent fyrir áratug. Hann mælist nú 27,7 prósent. Forstjóri útgáfu­félags blaðsins segir eðlilegt að spyrja hvort það muni hætta að koma út á prenti og komi út rafrænt. Á einhverjum tíma­punkti muni það gerast.

„Við verðum að horfast í augu við það að á einhverjum tíma­punkti í fram­tíðinni mun Frétta­blaðið, sem ber ægishjálm yfir aðra miðla hér á landi hvað varðar útbreiðslu og lestur, hætta að koma út á prenti.“ Þetta segir Jón Þórisson, forstjóri Torgs sem er útgáfu­félag Frétta­blaðsins, í umfjöllun um fjölmiðla í blaðinu í dag.

Lestur Frétta­blaðs­ins mælist nú 27,7 pró­sent í heild, samkvæmt nýjustu lestrar­tölum Gallup. Hann fór í fyrsta sinn undir 30 pró­sent í jan­úar á þessu ári og hefur haldið áfram að dala í hverjum mán­uði síðan þá. Alls hefur lest­ur­inn meira en helm­ing­ast á einum ára­tug.

Blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­­­festu á dag­­­blaða­­­mark­aði með til­­­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­­­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust til að mynda 65,2 pró­­­sent lands­­­manna lesa Frétta­­­blað­ið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­­­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­­­sent.

Mestur er sam­drátt­ur­inn hjá yngri les­end­um. Hjá ald­urs­hópnum 18 til 49 ára mælist hann nú 18,3 pró­sent eftir að hafa farið undir 20 pró­sent í fyrsta sinn í apríl síð­ast­liðn­um. Fyrir tólf árum lásu 64 pró­sent lands­manna í þessum ald­urs­hópi Frétta­blað­ið. Lest­ur­inn í dag er ein­ungis 28 pró­sent af því sem hann var hjá full­orðnum undir fimm­tugu vorið 2010.

Hætta prenti en halda sömu uppsetningu á rafrænu formi

Í umfjöllun Frétta­blaðsins í dag er haft eftir Jóni að fjöl­miðlar verði að vera óhræddir við að skoða nýjar leiðir til útgáfu. „Sem dæmi má nefna [danska dagblaðið] BT, sem ætlar að hætta útgáfu blaðsins á prenti og gefa út eingöngu á rafrænu formi. Þeir verða þá ekki endilega vefmiðill heldur yrði uppsetning blaðsins nákvæmlega sú sama og hún hefði verið á prenti.“

Jón segir að um afar athyglis­verða tilraun sé að ræða og að hann hafi fulla trúa á að BT muni takast að halda þeirri útgáfu áfram. „Þá er eðlilegt að menn spyrji hvort það sé eitthvað sem gæti gerst á okkar miðli.“

Frétta­blaðið er í eigu útgáfu­­fé­lags­ins Torgs og er flagg­­skip þess félags. Félagið rekur einnig vefmiðlana dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hringbraut.is, frettabladid.is og sjón­­­varps­­­stöð­ina Hring­braut.

Útgáfu­­­­dögum Frétta­blaðs­ins var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­­­dags­út­­­­­­­gáfu blaðs­ins. Auk þess hefur dreif­ing frí­­­blaðs­ins dreg­ist saman úr 80 í 75 þús­und ein­tök á dag.

Torg er í eigu tveggja félaga, Hof­­­­garða ehf. og HFB-77 ehf. Eig­andi fyrr­­­­nefnda félags­­­­ins er fjár­­­­­­­fest­ir­inn Helgi Magn­ús­­­­son og hann á 82 pró­­­­sent í því síð­­­­­­­ar­­­­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sig­­­­urður Arn­gríms­­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­­skipta­­­­fé­lagi Helga til margra ára, áður­nefndur Jón Þór­is­­­­son, fyrr­ver­andi rit­­­­stjóri Frétta­­­­blaðs­ins og núverandi framkvæmda­stjóri Torgs, og Guð­­­­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­­­­varps­­­­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­­­­kvæmda­­­­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­­­­mála og dag­­­­­­­­­skrár­­­­­­­­­gerðar hjá Torg­i. Hlutur ann­­­arra en Helga er hverf­andi.

Hóp­­­ur­inn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­­­­að­­­­ar­­­­mál en í árs­­­­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­­­­ins.

Tapað rúmum millj­arði á þremur árum

Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 millj­­­ónir króna í lok árs 2020 og aftur um 300 millj­­ónir króna um síð­­­ustu ára­­mót. Með nýju hluta­fjár­­­aukn­ing­unni er ljóst að settir hafa verið 1,5 millj­­­arðar króna í kaup á Torgi og hluta­fjár­­­aukn­ingar frá því að Helgi og sam­­­starfs­­­menn hans komu að rekstr­inum fyrir þremur árum síð­­­an.

Torg hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2021 til árs­reikn­inga­skráar en í mars var birt frétt í Frétta­blað­inu þar sem sagði að félagið hefði tapað 240 millj­ónum króna í fyrra. Árið áður var end­an­­legt tap Torgs 599 millj­­ónir króna og því tap­aði það sam­tals 839 millj­­ónum króna á tveimur árum. Þá er búið að gera ráð fyrir 146 millj­­ónum króna sem Torg fékk í rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði á árunum 2020 og 2021.

Þegar end­an­­legu tapi árs­ins 2019 er bætt við nemur tapið á þriggja ára tíma­bili rúmum millj­­arði króna.

Kostar 100 þús­und krónur á ári

Hitt dag­blaðið á Íslandi, Morg­un­blað­ið, er selt í áskrift. Almenn áskrift kostar 8.383 krónur á mán­uði, eða 100.596 krónur á ári. Upp­lýs­ingar um fjölda áskrif­enda eru almennt ekki aðgengi­legar en á lestr­ar­tölum sem Gallup safnar saman má ljóst vera að þeim hefur fækkað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum.

Lestur blaðs­ins hjá öllum ald­urs­hópum mælist nú 17,4 pró­sent, og hefur aldrei mælst minni. Rúmt ár er síðan að lest­ur­inn fór í fyrsta sinn undir 20 pró­sent. Vorið 2009, þegar nýir eig­endur komu að Árvakri, útgáfu­­fé­lagi Morg­un­­blaðs­ins, var lestur þess yfir 40 pró­­sent.

Hjá lands­­mönnum á aldr­inum 18 til 49 ára mælist lestur blaðs­ins nú 8,4 pró­­sent en í byrjun árs 2009 lásu um þriðj­ungur lands­­manna í þeim ald­­ur­s­hópi blað­ið.

Kjarn­inn greindi frá því í júní að rekstr­­ar­tap Árvak­­urs, útgáfu­­fé­lags Morg­un­­blaðs­ins, á síð­­asta ári hafi verið 113 millj­­ónir króna. Það er lægra rekstr­­ar­tap en árið áður, þegar útgáfu­­fé­lagið tap­aði 210 millj­­ónum króna.

Í fyrra fékk Árvakur þó 81 millj­­ónir króna í rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði auk þess sem félagið frest­aði greiðslu á stað­greiðslu launa starfs­­­manna og trygginga­gjaldi í fyrra upp á alls 122 millj­­­ónir króna. Um er að ræða vaxta­­­laust lán úr rík­­­is­­­sjóði sem þarf að end­­­ur­greið­­­ast fyrir mitt ár 2026. Greiðslur eiga að hefj­­­ast síðar á þessu ár.

Í frétt sem birt­ist í Morg­un­­­blað­inu í byrjun maí var greint frá því að hefði skilað 110 millj­­­óna króna hagn­aði í fyrra. Í þeirri frétt var ekki minnst á vaxta­­lausa lán­­töku hjá rík­­is­­sjóð­i.

Í árs­­reikn­ingi Árvakur sést hvernig sá hagn­aður myndast, en hann er ekki til­­kom­inn vegna reglu­­legs rekst­­urs, af honum er áfram sem áður tap.

Hluta­fjár­­­aukn­ing í byrjun árs

Kjarn­inn greindi frá því í mars að hlutafé í Morg­un­­blaðs­­sam­­stæð­unni hafi verið aukið um 100 millj­­­­­ónir króna þann 31. jan­úar síð­­­­­ast­lið­inn. Aðilar tengdir Ísfé­lagi Vest­­­­­manna­eyja og félag í eigu Kaup­­­­­fé­lags Skag­­­­­firð­inga greiddu stærstan hluta henn­­­­ar.

Þetta var í þriðja sinn frá árinu 2019 sem nýtt hlutafé er sett inn í rekstur fjöl­miðla­­­­­sam­­­­­steypunnar til að mæta tap­­­­­rekstri henn­­­­­ar. Í byrjun árs 2019 var hluta­­­­­féð aukið um 200 millj­­­­­ónir króna. Kaup­­­­­­­fé­lag Skag­­­­­­­firð­inga og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­­­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­­­­­sent þeirrar aukn­ing­­­­­ar. Sum­­­­­­­­­arið 2020 var hluta­­­­­féð aukið um 300 millj­­­­­ónir króna og kom allt féð frá þeim eig­enda­hópi sem var þegar til stað­­­­­ar. Að við­bættri þeirri hluta­fjár­­­­­aukn­ingu sem ráð­ist var í í upp­­­­­hafi árs hefur móð­­­­­ur­­­­­fé­lagi Árvak­­­­­urs því verið lagt til 600 millj­­­­­ónir króna á þremur árum.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­­­­urs í febr­­­­úar 2009 undir hatti Þór­s­­­­merkur og til loka árs 2020 hefur útgáfu­­­­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­­­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­­­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­­­­­arða króna í nýtt hluta­­­­­fé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár