Nigel Farage náði ekki þingsæti - fyrstur leiðtoga til að segja af sér embætti

Nigel Farage, leiðtogi Breska sjálfstæðis­flokksins, UKIP, náði ekki þingsæti í Suður-Thanet. Þetta varð ljóst nú í morgun og í kjölfarið tilkynnti hann að hann hygðist segja af sem formaður flokksins.

Fyrir kosningarnar sagði Farage að ef hann næði ekki þingsætinu myndi hann segja af sér „innan tíu mínútna“. Það gerði hann hins vegar ekki í ræðu sinni um leið og úrslitin voru kynnt, heldur hélt stuttan blaðamanna­fund um klukku­stund seinna þar sem hann tilkynnti þetta.

Hann sagðist vera maður orða sinna og því ætlaði hann að segja af sér embætti. Hins vegar sagðist hann ætla að íhuga stöðu sína í sumar og mögulega muni hann bjóða sig aftur fram til embættisins í haust. Hann ætlar að taka sér frí í allt sumar, í fyrsta skipti frá árinu 1993 að eigin sögn.

Það var Craig Mackinlay, fram­bjóðandi Íhalds­flokksins, sem hlaut flest atkvæði og þar með þingsætið í kjör­dæminu. Hann hlaut tæplega 19 þúsund atkvæði og 38 prósent, en Farage hlaut rúmlega 16 þúsund atkvæði, eða 32 prósent.

Þetta þýðir að UKIP fær bara eitt þingsæti í neðri deild breska þingsins í Westminster, þrátt fyrir að hafa hlotið um 13 prósent atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár