Matís og Síldarvinnslan fengu um 30 prósent styrkja úr Matvælasjóði

Verkefni sem Síld­ar­vinnslan, sem átti um 46 millj­arða króna í eigin fé um síð­ustu ára­mót, kemur að með beinum eða óbeinum hætti fengu 13,2 pró­sent þess fjár­magns sem Mat­væla­sjóður úthlut­aði. Matís, opin­bert hluta­fé­lag, fékk yfir 100 millj­ónir króna.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvælasjóðs.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Gréta María Grét­ars­dóttir, for­maður stjórnar Mat­væla­sjóðs. Mynd: stjornarrad.is

Síld­ar­vinnslan fékk 16 milljón króna styrk úr Mat­væla­sjóði vegna verk­efnis um nýtt þrá­ar­varn­ar­efni og stöð­ug­leika mak­ríl­mjöls þegar úthlutað var í fyrsta sinn úr sjóðnum í vik­unni. Hún fékk líka 22,6 millj­ónir króna úr sjóðnum vegna verk­efnis um vinnslu próteins úr hlið­ar­straumum mak­ríls og er á meðal sam­starfs­að­ila Matís í verk­efni um að vinna verð­mæt efni úr hlið­ar­straumum þör­unga­vinnslu sem fékk 24,9 millj­ónir króna úr Mat­væla­sjóði. Sam­an­lagt fengu því verk­efni sem Síld­ar­vinnslan kemur að 63,5 millj­ónir króna af þeim 480 millj­ónum króna sem sjóð­ur­inn úthlut­aði, eða 13,2 pró­sent þess fjár sem úthlutað var.

Alls fengu sex verk­efni yfir 20 milljón króna styrk. Til við­bótar við þau tvö sem talin er upp hér að ofan fékk Matís líka 22,5 millj­ónir króna vegna verk­efnis sem snýr að hákarla­verkun og 22 millj­ónir króna vegna verk­efnis sem snýst um streitu lax­fiska. Matís, sem er opin­bert hluta­fé­lag sem heyrir undir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðið, fékk alls 102,7 millj­ónir króna úr Mat­væla­sjóði í fyrstu úthlutun hans, eða 21,4 pró­sent alls þess sem úthlutað var.

Þá fékk Saltverk 21 milljón króna í styrk vegna mark­aðs­sóknar á sjálf­bæru sjáv­ar­salti í Banda­ríkj­unum og hags­muna­gæslu­sam­tökin Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) fengu 21 milljón króna styrk til að vinna að mark­aðs­sókn fyrir þorsk á Bret­lands­markað. Á árinu 2019 fluttu íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki út 22.793 tonn af þroski til Bret­lands, en það þýðir að rúm­lega 17 pró­sent af öllum útfluttum þorski frá Íslandi fór inn á þann markað.

Í stjórn Mat­væla­sjóðs, sem ákveður hvert styrkirnir fara, situr meðal ann­ars Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS. Auk hennar sitja í sjóðnum Gréta María Grét­ars­dóttir, sem er for­maður sjóðs­ins, Karl Frí­manns­son og Gunnar Þor­geirs­son, sem er til­nefndur af Bænda­sam­tökum Íslands.

Alls fengu 62 verk­efni styrk í þess­ari fyrstu úthlutun sjóðs­ins, en alls bár­ust 266 umsóknir um styrki upp á sam­tals 2,7 millj­arða króna.

Umfangsmikill rekstur

Sam­an­lagt fóru því 141,3 milljón króna, eða 29,4 pró­sent af öllu því fé sem úthlutað var til verk­efna í fyrstu úthlutun Mat­væla­sjóðs til opin­bera hluta­fé­lags­ins Matís og Síld­ar­vinnsl­unnar.

Árlegar tekjur Matís, sem hefur þann til­gang að sinna rann­sóknum og nýsköpun á sviði mat­væla, koma frá þjón­ustu­samn­ingi við atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, frá erlendum sjóðum og fyr­ir­tækjum, frá inn­lendum sjóðum og öðrum opin­berum aðilum og inn­lendum fyr­ir­tækjum. Alls seldi Matís þjón­ustu fyrir tæp­lega 1,7 millj­arð króna í fyrra. Þar af komu 399,5 millj­ónir króna vegna áður­nefnds þjón­ustu­samn­ings við ráðu­neytið.

Á eigið fé upp á 46 millj­arða

Síld­ar­vinnslan ehf. átti eigið fé upp á 360,5 millj­ónir dala um síð­ustu ára­mót. Á með­al­gengi síð­asta árs gerir það 44 millj­arða króna en á gengi dags­ins í dag er eigið fé um 46 millj­arðar króna.

Rekstr­ar­hagn­aður Síld­ar­vinnsl­unnar á síð­asta ári var tæp­lega átta millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag og end­an­legur hagn­aður eftir skatta um fimm millj­arðar króna. Eigið féð var, líkt og áður sagði, um 45 millj­arðar króna.

Síld­ar­vinnslan heldur beint á 5,2 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla. Auk þess heldur Berg­ur-Hug­inn, sem er að öllu leyti í hennar eigu, nú á á um 2,7 pró­sent alls kvóta. Þá á Síld­­­ar­vinnslan 75,20 pró­­­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­­­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta.

Stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji hf. með 44,6 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess á Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni.

Sam­herji á því, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni. Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóri Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður félags­ins. Síld­ar­vinnslan á líka 0,92 pró­sent í sjálfri sér, sem þýðir að sam­an­lagður eig­in­hlutur hennar og eign­ar­hluti stærsta eig­and­ans fer nálægt 51 pró­senti.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­sögu allra sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­­sent. ­Út­­­­­­­gerð­­­­­­­­ar­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­­sent hans.

Sam­an­lagt er þessi blokk Sam­herja og Síld­ar­vinnsl­unnar með að minnsta kosti 17,5 pró­­­­sent afla­hlut­­­­deild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár