Fleiri eldri borgarar gerast glæpamenn - eru oft einmana og fátækir

Það vakti athygli á dögunum þegar breska lögreglan hafði loks hendur í hári skartgripa­ræningja sem létu greipar sópa í skartgripa­hverfinu Hatton Gardens í Lundúnum um síðustu páska. Ránið var þaul­skipulagt, og tilþrifa­mikið og minnti helst á Oceans Eleven kvik­myndina, en ræningjarnir höfðu á brott með sér skart­gripi og önnur verðmæti fyrir hátt í tíu milljónir sterlingspunda, eða sem nemur röskum tveimur milljörðum króna miðað við gengi íslensku krónunnar í dag.

Handtaka ræningjanna vakti vissulega athygli, en það sem lyfti ekki síður brúnunum á almenningi þegar tilkynnt var um að skartgripa­þjófarnir væru komnir bakvið lás og slá, var þegar greint var frá aldri þeirra. Kenningar höfðu verið uppi um að liðugur fimleika­kappi hafi verið í ræningja­hópnum sem hafi svo smeygt sér inn í rammgerða öryggis­hvelfinguna, og þá voru aðrir sem héldu því fram að ránið hefði verið skipulagt af frægum glæpa­manni á fertugsaldi, betur þekktur sem „Konungur demant­anna.“

Þegar breska lögreglan handtók níu menn grunaða um ódæðið kom það mörgum á óvart hversu rosknir þjófarnir voru. Yngstur hinna grunuðu var 42 ára, og aðrir töluvert eldri. Þann 21. maí síðastliðinn kvaðst einn sakborninganna, sem er 74 ára, eiga erfitt með að skilja spurningar réttar­varðar fyrir dómi, þar sem heyrn hans væri farin að versna. Þá haltrar einn hinna meintu þjófa, en hann er hart nær sextugur.

„Gamlingjarnir“ boruðu sig í gegnum þykkan steinvegg til að komast í góssið. Mynd: EPA

Glæpamenn að verða eldri


Ungir karl­menn eru enn í yfir­gnæf­andi meiri­hluta þeirra sem fremja glæpi, en hins vegar fer glæpa­tíðni á meðal þeirra sem eldri eru ört vax­andi í Bret­landi, ann­ars staðar í Evrópu og á meðal þjóða í Asíu. Frétta­vef­ur­inn Bloomberg greinir frá þess­ari athygl­is­verðu stað­reynd.

„Gamlingjarnir“ boruðu sig í gegnum þykkan steinvegg til að komast í góssið. Mynd: EPA
„Gaml­in­gj­arnir“ bor­uðu sig í gegnum þykkan stein­vegg til að kom­ast í góssið. Mynd: EPA

Samkvæmt nýlegum tölum frá yfir­völdum í Suður-Kóreu jukust glæpir á meðal fólks eldra en 65 ára um 12,2 prósent á árunum 2011 til 2013. Þá fjölgaði ofbeldis­glæpum í aldurs­flokknum um hvorki meira né minna en 40 prósent á tíma­bilinu. Til saman­burðar má geta þess að öldruðum fjölgaði um 9,6 próesnt á tíma­bilinu sem var til skoðunar.

Í Japan tvöfaldaðist fjöldi glæpa sem framinn var af fólki eldra en 65 ára, á árunum 2003 til 2013. Athygli vekur að aldraðir hafa tekið fram úr unglingum í búðar­hnupli í Japan. Í hollenskri rannsókn frá árinu 2010, má sjá mikla og hraða aukningu í handtökum og fangelsunum aldraðra, og í Lundúnum hefur fjöldi 65 ára og eldri sem hefur verið hand­tekinn aukist um tíu prósent á árunum 2009 til 2014.

Svo virð­ist sem að Banda­ríkin hafi sloppið við þró­un­ina, en sam­kvæmt tölum frá banda­ríska dóms­mála­ráðu­net­inu hefur glæpa­tíðni í ald­urs­hópnum 55 til 65 ára farið minnk­andi ár frá ári síðan á níunda ára­tugnum.

Aldraðir virkari en áður


„Eldra fólk í þró­aðri löndum er í dag með­vit­aðra, minna und­ir­gefið og meira upp­tekið af félags­legum og efna­hags­legum þörfum sínum en áður var,“ þetta segir Bas van Alphen, belgískur sál­fræði­pró­fessor sem hefur rann­sakað glæpa­hneigð á meðal aldr­aðra. Hann segir að öldruðum hætti nú til að grípa til grip­deilda til að standa jafn­fætis efn­aðri jafn­ingjum sínum, og þá fremji margir þeirra glæpi vegna ein­gangr­unar. „Einn af mínum skjól­stæð­ingum stal sæl­gæti til að takast á við ein­mana­leik­ann,“ hefur Bloomberg eftir van Alphen.

Þá er aukin fátækt í elsta aldurs­hópnum líka talin hafa sitt að segja varðandi aukna glæpa­tíðni á meðal aldraðra. Það er minnsta kosti tilfellið í Suður-Kóreu þar sem 45 prósent fólks eldra en 65 ára lifir undir fátæktar­mörkum. Áætlað er að meira en 20 prósent íbúa Suður-Kóreu verði eldri en 65 ára árið 2026.

Opa-gengið, eða afa-gengið, sem samanstóð af þremur þýskum körlum á sjötugs- og áttræðis­aldi og voru dæmdir árið 2005 fyrir að ræna meira en einni milljón evra af tólf bönkum, bar fyrir dómi að ránin hefðu verið skipulögð til að bæta ofan á elli­lífeyri þremenninganna. Einn þeirra, Wilfried Ackermann, sagði að hann hefði notað sinn hlut ránfengsins til að kaupa sér lítið sveita­býli til að búa á, því hann óttaðist að vera settur á elli­heimili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár