David Bowie látinn

David Bowie, einn áhrifa­mesti tónlistar­maður heims­sögunnar, er látinn 69 ára að aldri, 18 mánuðum eftir að hann var greindur með krabba­mein. Greint hefur verið frá andláti hans á opinberri Facebook-síðu Bowie. Þar segir að Bowie hafi látist á friðsælan hátt umkringdur fjöl­skyldu sinni.

Sonur Bowie, kvikmynda­leik­stjórinn Duncan Jones, staðfesti einnig fregnirnar í færslu á Twitter.

Ferill Bowie spannaði nær hálfa öld en hann vakti fyrst heims­athygli með laginu Space Oddity árið 1969. Áætlað er að hann hafi selt um 140 milljónir platna á ferlinum. Síðast plata Bowie, Blackstar, kom út fyrr í þessum mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár