Umræðu um þriðja orkupakkann frestað um óákveðinn tíma

Umræðu um þriðja orku­pakk­ann sem átti að halda áfram á Alþingi í dag var frestað um óákveð­inn tíma. Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir þetta stór­fínt.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Umræðu um þriðja orku­pakk­ann sem átti að halda áfram á Alþingi klukkan 10.40 var frestað um óákveð­inn tíma. Þetta var gert eftir að for­ystu­menn flokk­anna sett­ust á fund í dag til að ræða fram­gang mála á Alþingi en frá þessu er greint í frétt RÚV.

For­ystu­menn flokk­anna ákváðu að halda funda­höldum áfram klukkan ell­efu og finna leiðir til að rjúfa þá flóknu stöðu sem upp er komin á Alþingi vegna mál­þófs þing­manna Mið­flokks­ins um þriðja orku­pakk­ann.

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir í sam­tali við Kjarnann þetta vera stór­fínt. „Það hefur aldrei staðið á okkur að fresta umræðum,“ segir hann.

Í stað þriðja orku­pakk­ans hófu þing­menn því umræðu um heil­brigð­is­stefnu til árs­ins 2030, þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði und­ar­legt að kom­ast í ræðu­stól að ræða málið eftir að hafa þurft að bíða í tíu daga. Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sagði þá að biðin væri hálfur mán­uður, sam­kvæmt RÚV.

Forseti Alþingis sagði við upp­haf þing­fundar að for­ystu­menn flokka hygð­ust eiga fund klukkan ell­efu til að leita leiða til að ná sam­komu­lagi. Því varð nið­ur­staðan af fyrri fundi þeirra í morgun að víkja frá röð mála á dag­skrá. Þriðji orku­pakk­inn var því tek­inn af dag­skrá og mál sem honum tengj­ast.

Lögðu til lausn

Fjórir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ar, Við­reisn, Pírat­ar, Sam­fylk­ingin og Flokkur fólks­ins, lögðu til fyrir tveimur dögum að flokk­arnir á Alþingi myndu semja um afgreiðslu þeirra mála sem bíða og að inn­leið­ing þriðja orku­pakk­ans, sem Mið­flokk­ur­inn hafði haldið uppi umræðu um dögum sam­an, yrði færð aft­ast á dag­skrá þessa þings.

Umræðan staðið í 134 klukkustundir

Í frétt RÚV kemur fram að umræðan um þriðja orku­pakk­ann sé orðin sú næst­lengsta á Alþingi síðan sam­einað hafi verið í eina deild árið 1991.

Umræðan hefur staðið í 134 klukku­stundir og átta mín­útur. Hún er klukku­stund styttri en umræðan um Icesave og er orðin hálfum öðrum sól­ar­hring lengri en umræðan um EES-samn­ing­inn. Umræðan um EES-samn­ing­inn var lengi lang­lengsta umræðan á Alþingi og sú fyrsta sem náði því að standa yfir í hund­rað klukku­stundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár