Enn rætt um þriðja orkupakkann á Alþingi

Síðustu daga hefur umræða Mið­flokks­manna um þriðja orku­pakk­ann tekið yfir öll störf á Alþingi en ræður, andsvör og svör við andsvörum um málið hafa staðið yfir í rúmar 120 klukku­stundir.

Enn stendur yfir fundur á Alþingi en hann hófst klukkan hálf ell­efu í gær­morgun. Í dag er tíundi dag­ur­inn sem síð­ari umræðan um þriðja orku­pakk­ann á sér stað á þing­inu. Ræður, andsvör og svör við andsvörum um málið hafa staðið í yfir 120 klukku­stundir og hafa þing­menn Mið­flokks­ins talað stóran hluta þess tíma. Forseti Alþingis hefur skorað á þing­menn að hætta mál­þófi um málið en hann til­kynnti jafn­framt í gær að starfs­á­ætlun þings­ins hafi verið felld úr gildi.

Koma í veg fyrir frekari röskun á starfi þingsins

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sagði við upp­haf þing­fundar í gær að starfs­áætl­un þings­ins yrði tek­in úr sam­bandi að afloknum eld­hús­degi í dag. Sam­kvæmt starfs­áætl­un­inni var gert ráð fyrir þingslitum 5. júní en Stein­grímur sagði að nú virð­ist ljóst að svo verði ekki

Stein­grímur benti á að fjöl­mörg mál væru á dag­skrá þings­ins en síð­ustu daga hefur umræða Mið­flokks­manna um þriðja orku­pakk­ann tekið yfir öll störf á þing­inu. Hann benti á að umræður um þriðja orku­pakk­ann hafi nú staðið yfir 100 klukku­stundir og þar af hafi einn og sami flokk­ur­inn talað í yfir 90 klukku­stund­ir í því máli, Stein­grím­ur sagði að æski­legt væri að þeirri umræðu færi að ljúka til að hægt væri að hefja umræðu um önn­ur mál og til að koma í veg fyr­ir frek­ari rösk­un á starfi þings­ins.[adspot]

Ræður og andsvör Mið­flokks­ins um málið eru yfir 2000 tals­ins í síð­ari viku umræð­unnar. Þingmenn Mið­flokks­ins vilja fresta mál­inu og vísa því aftur til sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir að umræðan snú­ist um efn­is­at­riði og sé því ekki mál­þóf. Hins vegar vanti svör stuðn­ings­manna orku­pakk­ans.

„Í fyrsta lagi er nú spurn­ing hvort að það sé hægt að skil­greina þetta sem mál­þóf, ann­ars vegar í ljósi þess að við erum raun­veru­lega að tala um málið, efn­is­at­riði þess og kryfja þau og hitt er við erum ekki að biðja um neitt fyrir það að hætta eins og menn gera jafnan í mál­þófi,“ sagði Sig­mundur Davíð í sam­tali við RÚV. Hann segir að flokkur hans muni tala áfram á meðan engin svör ber­ist og kryfja málin sjálf.

Ofbeldi og vanlíðan að geta ekki sinnt þingstörfum

Flokkur fólks­ins hefur einnig lagst gegn sam­þykkt þriðja orku­pakk­ans en for­maður flokks­ins segir hins vegar að nú sé nóg komið, mörg mik­il­væg­ari mál bíði afgreiðslu þings­ins. „Það þýðir ekki í nafni lýð­ræðis að láta lít­inn minni­hluta haga sér eins og við höfum þurft að þola hér allan þennan tíma og finna, í raun­inni hef ég ekki upp­lifað neitt annað í minni til­finn­ingu heldur en ofbeldi og van­líðan yfir því að geta ekki sinnt þeim störfum sem ég var hér kosin til þess að fylgja,“ sagði Inga Sæland á Alþingi í gær

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, hefur einnig kallað eftir því mál­þófi Mið­flokks­manna fari að ljúka. „Ég held að við getum öll verið sam­mála um það að þetta mál­þóf Mið­flokks­manna er komið út yfir öll vel­sæm­is­mörk og stöðvar hér fram­gang eðli­legrar vinnu í þing­inu, er þing­inu ekki til sóma og heldur ekki þeim Mið­flokks­mönnum.“

Búið að ræna völdum um stundarsakir

Stein­grímur segir í sam­tali við Frétta­blaðið í dag að það sé aug­ljóst að búið sé að ræna völdum á Alþingi um stund­ar­sakir. „Ég hef áður beðið þing­flokk Mið­flokks­ins að láta staðar numið og von­ast til að sú verði raunin. Þetta er algjört eins­dæmi, að einn þing­flokkur skuli halda uppi svona mál­þófi.“

Sig­mundur Davíð seg­ist hins vegar vera ósam­mála því að Mið­flokk­ur­inn hafi tekið völdin á þingi og segir það hálf ein­kenni­lega túlkun hjá Stein­grími þar sem hann fari sjálfur með dag­skrá­valdið. „Við höfum margoft boðið honum að taka önnur mál fram fyrir og ljúka þeim. Við erum öll af vilja gerð til að láta þing­störfin ganga vel,“ segir Sig­mundur í sam­tali við Frétt­blaðið í dag.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður VG, segir að í stöðu­upp­færslu á Facebook að þetta sé full­komið dæmi um þá rök­leysu sem Sigmundi Davíð sé tamt að setja fram. „Hann hafnar þessu öllu og full­yrðir að for­seti hafi dag­skrár­valdið, en þó bara til þess að gera það sem Sig­mundur Davíð vill, að taka önnur mál fram fyrir, en ekki til ann­ars Þetta eru rök þess sem reynir að kúga en getur ekki geng­ist við því heldur felur það í því að sá sem hann reynir að kúga hafi val, en við­ur­kennir um leið (án þess kannski að gera sér grein fyrir því) að valið snú­ist bara um að gera það sem kúg­ar­inn vill. Hann bítur síðan höf­uðið af skömminni með því að kalla þessa sam­eig­in­legu sjálfs­hólsorgíu góða umræðu og segja að það gæti flýtt umræð­unni að aðrir tækju þátt í henni og veittu þeim svör.“

Kolbeinn segir þetta í raun snú­ast um að búa til póli­tíska stöðu fyrir Sigmund Davíð. „Allt snýst þetta um að búa til póli­tíska stöðu fyrir Sigmund Davíð, eins og raunar allt annað sem hann gerir. Svo er það falið í fag­ur­gala.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár