Leggja til lausn á málþófi

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir - að Mið­flokknum und­an­skildum - leggja til lausn á mál­þofi um orku­pakka 3.

Fjórir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, Viðreisn, Píratar, Sam­fylk­ingin og Flokkur fólks­ins, leggja til að flokk­arnir á Alþingi semji um afgreiðslu þeirra mála sem bíða og að inn­leið­ing þriðja orku­pakk­ans, sem að Mið­flokk­ur­inn hefur haldið uppi umræðu um dögum saman, verði færð aft­ast á dag­skrá þessa þings.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá flokk­unum fjórum.

„Und­an­farnar vikur hefur staðið yfir mál­þóf níu þing­manna Mið­flokks­ins um þriðja orku­pakk­ann sem komið hefur í veg fyrir þing­lega með­ferð allra ann­arra mála. Það er gagn­rýni­vert að mörg stór mál rík­is­stjórn­ar­innar hafa komið allt of seint fram, þar á meðal inn­leið­ing þriðja orku­pakk­ans, auk þess sem enn er beðið eftir nýrri fjár­mála­stefnu og breyttri fjár­mála­á­ætlun,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni.

Þá segir að þetta hafi þær alvar­legu afleið­ingar, að mörg „gríð­ar­lega mik­il­væg mál“ bíði afgreiðslu og vand­séð hvenær þau fái þing­lega með­ferð.

„Stjórn­ar­meiri­hlut­anum hefur mis­tek­ist algjör­lega að höggva á þennan hnút,“ segir í yfir­lýs­ing­unni, og er þar vísað til Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

„Undir liggja miklir hags­munir almenn­ings og ótækt annað en að þing­menn, hvar í flokki sem þeir standa, fái tæki­færi til að sinna þessum verk­efnum í þágu kjós­enda af fullum krafti,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár