Ellefu ára píanóleikari skilur djass senuna í New York eftir gapandi

Ellefu ára djass píanó­leikari, Joey Alexander, sendi frá sér sína fyrstu plötu 12. maí, sem ber nafnið My Favorite Things, en hann hefur vakið gríðar­lega athygli að undan­förnu, fyrir fram­úrskarandi hæfileika sína. Raunar hefur djass senan í New York tekið honum opnum örmum, og hafa gestir á tónleikum þar sem hann hefur komið fram verið hálf­gapandi af undrun yfir þroskaðri spila­mennsku hans.

Alexander er fæddur í Jakarta í Indónesíu og sýndi fljótt að hann hefði mikla hæfileika, og væri með ólíkindum fljótur að tileinka sér tækni og taktfestu í krefjandi spila­mennsku djassins. Hann flutti til New York fyrir ári síðan með foreldrum sínum, eftir að flest útgáfu­fyrirtæki í Banda­ríkjanna settu sig í samband við fjöl­skyldu hans.

Í umfjöllun um Alexander í New York Times á dögunum, þar sem plata hans er til umfjöllunar, er honum hrósað í hástert. Hann er sagður afburða tónlistar­maður, óháð „undra­barns“ stimplinum sem hefur verið fastur við hann frá því að hann byrjaði að spila á píanó.

Hér má sjá Alexander spila djass með félögum sínum, sem leika með honum á plötunni. Þeir eru í hópi virtustu hljóðfæra­leikara í djass senunni í New York, en í viðtölum við þá, hrósa þeir stráknum unga fyrir afburða­hæfileika og einbeitingu við upptökur.

https://www.youtube.com/watch?v=UCyfG9M5hz4

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár