Ritstjórn Stundarinnar verðlaunuð fyrir umfjöllun um uppreist æru

Stundin fékk þrenn verðlaun sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Ritstjórn Stundarinnar fékk blaðamanna­verðlaun ársins fyrir umfjöllun um uppreist æru og ljós­myndari Stundarinnar var verð­launaður fyrir myndaröð ársins af samfélagi heimilis­lausra í Laugar­dalnum og portrait mynd ársins.

Ritstjórn Stundarinnar fékk Blaðamanna­verðlaun ársins 2017 fyrir ít­ar­lega umfjöllun um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna, áhrif þess á fórn­ar­lömb mann­anna og tregðu stjórn­valda til upp­lýs­inga­gjaf­ar. Umfjöllunin var að mati dómnefndar vönduð, yfirgrips­mikil og heildstæð.

Við sama tækifæri fékk Heiða Helga­dóttir ljós­myndari Stundarinnar tvenn verðlaun, annars vegar fyrir myndaröð ársins um samfélag heimilis­lausra í Laugardal, sem hægt er að sjá hér: Reykjavík 104,5: Íslenska flótta­fólkið í Laugar­dalnum.  Fékk hún einnig verðlaun fyrir portrait ársins, fyrir mynd af Sylviane Lecoultre Pétursson. 

Portrait árs­ins Í umsögn dóm­nefndar segir: Ljósmynd­ar­inn dregur fram líkams­tjáningu og svip­brigði Sylviane í ljóðrænni birtu sem varpar daufum skugga á vegg­inn, táknrænum skugga fyrir það sem ekki lengur er. Eig­in­maður hennar barð­ist við krabba­mein og valdi að fara til Sviss til að enda líf sitt.

Um leið og verð­launin voru veitt opnaði árleg sýning íslenskra blaða­ljósmyndara í Esju, austur­hluta Hörpu. Veitt voru verðlaun í 7 flokkum auk bestu myndar ársins. Mynd ársins 2017 tók Stefán Karlsson, ljós­myndari Frétta­blaðsins og er það mynd afNínu Rún Bergs­dóttur sem situr í stól húðflúrara sem er að flúra „I am the storm“ á öxl Nínu. Hún er þar ásamt konum sem allar fengu sér sama húðflúrið og höfðu allar orðið fyrir kynferðis­legu ofbeldi af hálfu sama manns. Myndin er á margan hátt táknræn fyrir árið 2017 því reynsla þeirra kom af stað hreyfingu sem fékk heitið „Höfum hátt“.

Mynd árs­insGlódís Tara, Nína Rún Bergsdóttir, Anna Katrín Snorradóttir og Halla Ólöf Jónsdóttir, fórnarlömb Róberts Downeys, fá sér allar sams konar húðflúr. Í umsögn dóm­nefndar sagði: Ekki er annað að sjá en að hér sé eitt­hvað alvana­legt að ger­ast. Húðflúr sem ristir ekki djúpt. Vinkonur saman. Það er þó víðsfjarri öllum sanni og myndin er á margan hátt táknræn fyrir árið 2017. Konurnar, Anna Katrín Snorradóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jónsdóttir og Nína Rún Bergsdóttir, urðu allar fyrir kyn­ferð­is­legri mis­notkun af hendi sama manns. Reynsla þeirra kom af stað hreyf­ingu sem fékk heitið Höfum hátt sem ásamt öðru varð til þess að ríkis­stjórn lands­ins féll. Ljósmynd­ar­inn hefur fangað við­kvæma stund. Fjórar mann­eskjur að tengj­ast eilífum böndum, sem fórnarlömb og sem aðgerða­sinnar. Nína Rún Bergsdóttir og stoð­irnar hennar þrjár allar að fá sér sama húðflúrið: „I am the storm“.

Sem fyrr segir voru verðlaun Blaðamanna­félags Íslands einnig veitt í Hörpu í dag. Alls voru veitt verðlaun í fjórum flokkum og fóru tvenn verðlaun til RÚV, fyrir viðtal ársins og rannsóknar­blaða­mennsku ársins.

Verðlauna­hafar og rökstuðningur dómnefndar var eftir­farandi:

Viðtal ársins

Viktoría Hermanns­dóttir, RÚV,

fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi?

Viðtals­þáttur Viktoríu er unninn af fagmennsku og góðri tilfinningu fyrir efni­viðnum. Í viðtalinu eru  hlustendur teknir með í spennandi ferð sem hefst með leit Bandaríkja­mannsins David Balsam að bróður sínum hér á landi. Bróðirinn finnst og heitir Árni Jón Árnason.

Í áhrifa­miklu viðtali nær Viktoría að draga fram hægláta persónu Árna, sem ekki  hefur krafist þess að taka mikið pláss í lífinu. Sambandi Árna við móður sína og systkini hér á á landi er vel lýst, sem og áhrifum þess að alast upp sem ástands­barn. Um þann hluta hernámsins á Íslandi hefur ekki verið mikið fjallað og er viðtalið  frábær viðbót við hina vönduðu þáttaröð, Ástands­börn, sem Viktoría gerði einnig á síðasta ári.  

Umfjöllun ársins

Sunna Ósk Loga­dóttir, Morgun­blaðinu,

fyrir umfjöllun ársins með greinar­flokknum Mátturinn eða dýrðin

Sunna varpaði skýru ljósi á þá stöðu sem uppi er á raforku­markaði hér á landi. Í greina­flokknum Mátturinn eða dýrðin sést hvernig sífellt fleiri togast á um náttúru­auðlindirnar sem eru af skornum skammti. Bent var á áhrif breyttra neyslu­venja lands­manna með rafbíla­væðingu og að eftir­spurn fyrir­tækja eftir raforku væri nú meiri en hægt er að afgreiða.

Um leið og þróun þessarar umræðu kom vel fram var bent á hvernig núverandi staða kallar á aðgerðir til að auka orku­framboð eða draga úr notkuninni. Sunna ræddi við tugi manna um stöðuna: íbúa, náttúru­verndar­sinna, virkjana­aðila, forsvars­menn stofnana og aðra sem hafa hagsmuni og skoðanir á málinu. Málefnið er mikilvægt, fram­setningin skýr og greinargóð, byggð á heimildum sem sóttar voru víða. 

Rannsóknarblaðamanneska ársins

Alma Ómars­dóttir, RÚV,

fyrir rannsóknar­blaða­mennsku í umfjöllun um uppreist æru

Umfjöllun Ölmu um uppreist æru var heildstæð, þar sem allar hliðar málsins voru kannaðar. Rætt var við fulltrúa aðila sem sótt hafði um uppreist æru, konur sem brotið hafði verið gegn og aðstand­endur þeirra og ferli umsóknar útskýrt.

Í samskiptum sínum við framkvæmda­valdið, sem ber ábyrgð á ferlinu, kom Alma hins vegar að lokuðum dyrum, þar sem neitað var að veita upplýsingar um hverjir hefðu fengið samþykktar umsóknir og hverjir veitt hefðu meðmæli með slíkum umsóknum. Ölmu tókst, meðal annars með kæru til Úrskurðar­nefndar um upplýsingamál, að tryggja að öll gögn kæmust upp á yfir­borðið og dró þannig fram nýjar upplýsingar sem skiptu verulegu máli fyrir almenning.

Blaðamannaverðlaun ársins

fær ritstjórn Stundarinnar fyrir umfjöllun um uppreist æru

Umfjöllun Stundarinnar um uppreist æru var vönduð, yfirgrips­mikil og heildstæð. Samhliða ítarlegum frétta­skýringum birtust í upphafi umfjöllunarinnar áhrifarík viðtöl Áslaugar Karenar Jóhanns­dóttur við fórnar­lömb Róberts Downey sem sýndu mikla næmni fyrir umfjöllunar­efninu.

Stundin lagði af mörkum mikla frumkvæðis­vinnu í þessu máli og greindi fyrst miðla frá því að annar kynferðis­brotamaður, Hjalti Sigurjón Hauksson, hefði fengið uppreist æru samtímis Róbert og að til þess hefði Hjalti hlotið meðmæli frá föður þáverandi forsætis­ráðherra. Sú uppljóstrun Stundarinnar átti eftir að draga verulegan dilk á eftir sér sem endaði með stjórnar­slitum og kosningum.

Fyrirvari við umfjöllun: Stundin fjallar hér um atburði þar sem fjölmiðillinn sjálfur er viðfangsefni.

 

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár