Fjármálaeftirlitið kærir fyrir brot á bankaleynd vegna fréttar í Morgunblaðinu

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sent kæru til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna fréttar sem birt­ist í Morg­un­blað­inu fyrir ári síðan um að Borgun hafi tekið út rúm­lega 200 millj­ónir króna af reikn­ingi sínum í Spari­sjóði Vest­manna­eyja. Eft­ir­litið telur að um brot á lögum um banka­leynd sé að ræða og hefur kært ótil­greindan aðila fyrir að hafa komið þeim upp­lýs­ingum til Morg­un­blaðs­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. Blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði frétt­ina, Stefán Einar Stef­áns­son, er vitni í mál­inu en er ekki kærður í því, líkt og kom upp­runa­lega fram.

Fréttin birt­ist 31. mars í fyrra undir fyr­ir­sögn­inni „700 millj­ónir króna teknar út úr Spari­sjóði Vest­manna­eyja“. Í henni kom einnig fram að Borgun hefði tekið út rúmar 200 millj­ónir króna í því áhlaupi.

Langt síðan eftirlitið hefur kært blaðamenn

Nokkuð langt er síðan að Fjár­mála­eft­ir­litið reyndi að beita sér gegn birt­ingu upp­lýs­inga úr banka­kerf­inu í fjöl­miðlum á grund­velli banka­leyndar. Það gerð­ist síð­ast í ágúst 2013 þegar Kjarninn birti í heild sinni skýrslu sem PwC hafði unnið fyrir Fjár­mála­eft­ir­litið um starf­semi Spari­sjóðs­ins í Keflavík, sem þá var gjald­þrota og hafði verið felldur inn í Lands­bank­ann. Spari­sjóði Vest­manna­eyja var einnig felldur inn í Lands­bank­ann í fyrra og er því ekki lengur til í þeirri mynd sem hann var þegar umfjöllun Morg­un­blaðs­ins var birt.

Efn­is­at­riði skýrsl­unnar um Spari­sjóð­inn í Keflavík voru rakin í frétta­skýr­ingu og skýrslan í heild sinni birt á vef Kjarnans.

Fjár­mála­eft­ir­litið gerði kröfu um að skýrslan yrði tekin úr birt­ingu vegna upp­lýs­inga sem finna má í skýrsl­unni sem eft­ir­litið telur að eigi ekki erindi við almenn­ing. Í beiðni eft­ir­lits­ins var m.a. vitnað til laga um banka­leynd. Auk þess gaf Fjár­mála­eft­ir­litið sterk­lega í skyn að birt­ing skýrsl­unnar gæti varðað við almenn hegn­ing­ar­lög.

Kæru gegn sex blaðamönnum var vísað frá

Kjarninn hafn­aði beiðni eft­ir­lits­ins og kom þeim skila­boðum á fram­færi að hann teldi alvar­legt að eft­ir­lits­stofnun, sem starfar í þágu almenn­ings, skuli gefa það í skyn að fjöl­mið­ill sé að ger­ast sekur um brot á hegn­ing­ar­lögum með því að birta skýrslu um starf­semi Spari­sjóðs. Ekki síst vegna afleið­inga sem fall spari­sjóðs­ins hafði fyrir rík­is­sjóð og íbúa á Suð­ur­nesjum. Samtals þurfti að leggja fram 26 millj­arða króna úr rík­is­sjóði vegna falls sjóðs­ins og stór hópur fólks­ins á Suð­ur­nesjum missti ævisparnað sinn.

Kjarninn taldi einnig frá­leitt að birt­ing skýrsl­unnar hefði falið í sér lög­brot og benti á að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði áður reynt að hindra blaða­menn í umfjöllun um fjár­mála­fyr­ir­tæki sem væru ekki lengur til, vegna birt­ingar á upp­lýs­ingum úr lána­bók Kaup­þings og Glitnis skömmu skömmu eftir hrun. Þá var einnig vísað í brot á banka­leynd. Fjár­mála­eft­ir­litið kærði þá alls sex blaða­menn til sér­staks rík­is­sak­sókn­ara sem vís­aði frá kæru eft­ir­lits­ins. Blaða­menn­irnir sem um ræðir voru Agnes Braga­dóttir, Þorbjörn Þórð­ar­son, Kristinn Hrafns­son, Egill Helgason, Guð­mundur Magn­ús­son og Ingi Freyr Vil­hjálms­son.

I ljósi þess að for­dæmi voru fyrir því að kærum gegn blaða­mönnum á grund­velli banka­leyndar væri vísað frá, og vegna þess að upp­lýs­ing­arnar sem Kjarninn birti áttu klárt erindi við almenn­ing, féllst Kjarninn og lög­maður hans ekki á rök Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í mál­inu þá hafn­aði hann því að fjar­lægja skýrsl­una af vef sínum og hélt áfram umfjöllun um mál­efni Spari­sjóðs­ins í Keflavík. Fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóri hans var ákærður fyrr í þessum mán­uði fyrir umboðs­svik.

Fjár­mála­eft­ir­litið fylgdi ekki eftir hót­unum sínum um kæru gegn Kjarn­anum.

Fréttin varð upp­færð klukkan 9:30 eftir að upp­lýs­ingar bár­ust um að blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði frétt­ina væri ekki kærður heldur ótil­greindur aðili sem liggur undir grun um að hafa komið upp­lýs­ing­unum til Morg­un­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár