Trump og Clinton unnu og Bush er úr leik

Hillary Clinton sigraði Bernie Sanders í forvali Demókrata­flokksins í Nevada í gær. Clinton hlaut 52,6% atkvæða á meðan Bernie Sanders fékk 47,3%. Sanders sagðist engu að síður vera með vindinn í bakið, og hann og hans fólk væru á mikilli siglingu.

Donald Trump sigraði í forvali repúblikana í Suður-Karólínu, sem fór einnig fram í gær. Trump vann stórsigur, fékk 32,5% atkvæða, um tíu prósentu­stigum meira en Marco Rubio og Ted Cruz, sem voru nánast hníf­jafnir í öðru og þriðja sæti.

Jeb Bush tilkynnti í nótt, að íslenskum tíma, að hann hygðist nú hætta í barátt­unni eftir léleg úrslit í fyrstu þremur forvölunum. Hann lenti í fjórða sæti í Suður-Karólínu í gær. Bush hélt tilfinninga­þrungna ræðu eftir að úrslitin voru ljós. „Fólkið í Iowa, Suður-Karólínu og New Hampshire hefur talað, og ég virði þeirra ákvörðun mjög,“ sagði hann. „Ég lifi ótrúlegu lífi og fyrir mig hefur almanna­þjónusta verið hápunktur lífsins.“

Bush var talinn líklegastur til að hreppa útnefningu Repúblikana­flokksins þegar hann hóf kosninga­baráttuna um mitt síðasta ár. Þá var mikið fjallað um mögu­leikann á því að annar Clinton og þriðji Bush yrðu í framboði. Það fór þó að halla fljótt undan fæti, ekki síst vegna Donalds Trump.

Á þriðjudag kjósa svo demó­kratar í Suður-Karólínu og repúblikanar í Nevada. Viku síðar munu svo tólf ríki velja sína fram­bjóðendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár