Kvenréttindafélagið fær 10 milljónir fyrir jafnréttisfræðslu

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur samið við Kven­rétt­inda­fé­lagið um að félagið sinni fræðslu, nám­skeiða­haldi og upp­lýs­inga­gjöf um jafn­rétti kynj­anna á inn­lendum og erlendum vett­vangi næsta árið.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélgasins, undirrita samstarfssamning
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, og Fríða Rós Valdi­mars­dóttir, for­maður stjórnar Kven­rétt­inda­fél­gasins, und­ir­rita sam­starfs­samn­ing Mynd: Stjórnarráðið

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, og Fríða Rós Valdi­mars­dóttir, for­maður stjórnar Kven­rétt­inda­fé­lags­ins, hafa und­ir­ritað samn­ing þess efnis að Kven­rétt­inda­fé­lagið sinni fræðslu, nám­skeiða­haldi og upp­lýs­inga­gjöf um jafn­rétti kynj­anna á inn­lendum sem og erlendum vett­vangi. Samn­ing­ur­inn gildir frá 15. febr­úar 2019 til 15. febr­úar 2020 og greiðir for­sæt­is­ráðu­neytið félag­inu 10 millj­ónir króna til að sinna þeim verk­efnum. Í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu segir að meg­in­mark­miðið samn­ings­ins sé að efla fræðslu fyrir almenn­ing um kynja­jafn­rétt­is­mál í sam­ræmi við mark­mið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Þekking er mikilvægasta tækið til að takast á við kynjakerfið

Kven­rétt­inda­fé­lagið á sam­kvæmt samn­ingnum að sinna hinum ýmsu verk­efnum. Auk almennrar fræðslu skal félagið meðal ann­ars halda nám­skeið fyrir konur, þar á meðal konur af erlendum upp­runa, um efna­hags­leg, félags­leg og menn­ing­ar­leg rétt­indi og einnig borg­ara­leg og stjórn­mála­leg rétt­indi, með það að mark­miði að auka þátt­töku allra kvenna í umræðu og starfi á opin­berum vett­vangi.

„Kven­rétt­inda­fé­lagið hefur gegnt afar mik­il­vægu hlut­verki í íslensku sam­fé­lagi í rúma öld. Við vitum að þekk­ing er mik­il­væg­asta tækið til að takast á við kynja­kerfið og þess vegna skiptir miklu að rót­gróið félag eins og Kven­rétt­inda­fé­lagið hafi tök á að sinna fræðslu- og upp­lýs­inga­málum,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir.

Sjá um útgáfu námsefnis um jafnréttismál

Enn fremur á Kven­rétt­inda­fé­lagið að standa að árlegu kynja­þingi frjálsra félaga­sam­taka á sviði jafn­rétt­is­mála. Að auki skal félagið halda árlega sam­ráðs­fundi með konum á Alþingi og í sveit­ar­stjórnum um leiðir til að auka þátt­töku kvenna og styrkja stöðu þeirra á vett­vangi stjórn­mál­anna. Jafn­framt á félagið að halda árlegan sam­ráðs­fund með kenn­urum sem kenna kynja- og jafn­rétt­is­fræði á öllum skóla­stigum í því augna­miði að auka þekk­ingu og færni kenn­ara á sviði jafn­rétt­is­mála.

Auk þess á félagið að halda opna fundi, sjá um útgáfu náms­efnis um jafn­rétt­is­mál á raf­rænu formi eða prenti og með gerð upp­lýs­inga­efnis á íslensku og ensku til birt­ingar á vef­svæði félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár