Samfylkingin mælist stærst en Viðreisn tapar fylgi

Samfylkingin mælist með tæplega 30 prósenta fylgi í nýjum Þjóðar­púlsi Gallup og er áfram stærsti flokkur landsins. Viðreisn missir tæp tvö prósentu­stig frá síðustu könnun. Stjórnar­flokkarnir þrír eru saman með 44 prósenta fylgi en helmingur þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkis­stjórnina.

Samfylkingin mælist með 29,6 prósenta fylgi í nýjum Þjóðar­púlsi Gallup og bætir við sig 1,7 prósentu­stigum frá því í júlí. Sjálfstæðis­flokkurinn mælist næst­stærstur með 26,8 prósent og bætir við sig 1,4 prósentu­stigum. 

Miðflokkurinn mælist með 15,6 prósenta fylgi og Viðreisn með 9,7 prósent. Viðreisn tapar 1,7 prósentu­stigum frá júlí og er það stærsta breytingin á fylgi einstakra flokka milli mánaða.

Framsóknar­flokkurinn mælist með 5,5 prósenta fylgi og Flokkur fólksins með 4,8 prósent. Vinstri græn, sem eiga ekki fulltrúa á Alþingi eftir síðustu kosningar, mælast með 3,6 prósent og Sósíalista­flokkur Íslands, sem aldrei hefur átt þing­fulltrúa, með 2,4 prósent.

Könnun Gallup 4.–31. ágúst 2026
Þjóðarpúls Gallup fyrir september. Fylgi flokka á landsvísu samkvæmt net– og símakönnun sem Gallup gerði dagana 4. - 31. ágúst 2026. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-1,3%. Úrtakið í netkönnun var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Gallup, en úrtakið í símakönnun var tilviljunarúrtak úr Þjóðskrá.
Samfylkingin
29,6%
Sjálfstæðisflokkurinn
26,8%
Miðflokkurinn
15,6%
Viðreisn
9,7%
Framsókn
5,5%
Flokkur fólksins
4,8%
Vinstri græn
3,6%
Sósíalistaflokkurinn
2,4%
Heimild: Gallup. Úrtak 13.836, svarhlutfall 40,2%. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.

Flokkur fólksins langt undir kjörfylgi

Ríkis­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur er mynduð af Samfylkingunni, Viðreisn og Flokki fólksins. Saman mælast flokkarnir nú með 44,1 prósents fylgi. Það er svipað og í júlí, þegar samanlagt fylgi þeirra var 44,5 prósent, en talsvert minna en samanlagt kjörfylgi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár