Alan Rickman látinn

Breski leikarinn Alan Rickman er látinn 69 ára að aldri. Hann hafði barist við krabba­mein.

Leikarinn góðkunni Alan Rickman lést í London í dag, 69 ára að aldri. Hann hafði barist við krabba­mein.

Rickman var einn vinsælasti leikari Bretlands. Hér á landi er hann líklega best þekktur fyrir hlutverk sín sem prófessor í kvik­myndunum um Harry Potter, þar sem hann fór með hlutverk prófess­orsins Severus Snape, vondi Þjóð­verjinn Hans Gruber í fyrstu Die Hard myndinni, hinn voðalega illi fógeti af Nottingham í Robin Hood: Prince of Thieves, og svo í uppáhalds jólamynd Íslendinga, Love Actually.

Rickman hefur unnið til fjölda verðlauna á ferlinum, meðal annars BAFTA, Golden Globe, Emmy og Screen Actors Guild. Rickman fæddist í London, 21. febrúar 1946.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár