Verðhrun á olíu á heimsmarkaði - Tæplega 6 prósent lækkun í dag

Verð á olíu hefur hrunið á heims­mörkuðum í dag, en á Bandaríkja­markaði hefur verð­fallið á hráolíu verið 5,81 prósent. Tunnan kostar nú rúmlega 33 Bandaríkja­dali. Fyrir aðeins fimmtán mánuðum var verðið í kringum 110 Bandaríkja­dali.

Samkvæmt fréttum Wall Street Journal eru ástæður verð­hrunsins í dag raktar til þess að áhyggjur af gangi mála í Kína séu nú orðnar útbreiddar hjá fjár­festum. Þeir óttist að eftir­spurn muni dragast enn meira meira saman, sem getur haft mikil áhrif á gang efnahags­mála um allan heim.

Orku­fyrirtæki í S&P 500 vísi­töluna í Banda­ríkjunum lækkuðu um 4,3 prósent í viðskiptum dagsins, og Nasdaq vísitalan féll um 1,7 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár