Repúblikanar hóta að rífa Parísar-samkomulagið í tætlur

Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana í fulltrúadeildinni.
Mitch McConnell, leið­togi repúblik­ana í full­trúa­deild­inni.

Leiðtogi repúblikana í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþing,Mitch McConnell, segir að loftlags­samningur Sameinuðu þjóðanna verði rifinn í tætlur eftir rúmt ár, ef flokkur hans vinnur sigur í forseta­kosningunum sem fara fram í nóvember á næsta ári. McConnell segir að áður en alþjóð­legir félagar Barack Obama, forseta Banda­ríkjanna, taki tappann úr kampavíns­flöskunni ættu þeir að muna að samningurinn byggi á markmiðum sem ekki sé hægt að ná og á orku­stefnu forsetans sem sé líklega ólögleg. Frá þessu er greint á vefnum Newsmax.

Alls sammældust 196 ríki um nýja loftlags­samninginn í París um helgina og Obama sagði að hann gæti varðað viðsnúning fyrir heims­byggðina í þessum málum. Raunar var viðbúið að McConnell og ýmsir aðrir repúblikanar myndu bregðast hart við. Hann hefur gagnrýnt hina hreinu orku­stefnu (e. The Clean Power Plan) Obama alveg frá því að hún var lögð fram og sagt hana vera árás á bandarísku milli­stéttina sem muni leiða til þess að enn fleiri störf flytjist frá Banda­ríkjunum, dragi úr samkeppnis­hæfni bandarísks viðskipta­lífs og hækki raforku­verð. McConnell segir orku­stefnuna ólöglega og að samkomu­lagið sem var samþykkt í París, og byggir á þeirri orku­stefnu, verði því rifið í tætlur ef repúblikanar taki við.

Forseta­fram­bjóðandinn Donald Trump, sem leiðir kapp­hlaupið að útnefningu Repúblikana­flokksins sem stendur samkvæmt könnunum, hafði sett fram mikla gagnrýni á mögulegt samkomulag áður en að fundurinn í París hófst. Trump sagði að ef hann hefði verið forseti þá hefði hann ekki mætt á fundinn vegna þess að það væru miklu mikil­vægari málefni til að fást við en þau sem fjallað væri um þar.

Fleiri þingmenn repúblikana tóku sig saman um helgina og birtu bréf til Obama þar sem samkomu­lagið var gagnrýnt. Þeir hafa áhyggjur af því að það hafi neikvæð hagræn áhrif innan Banda­ríkjanna og á hagsmuni landsins erlendis. Ýmsir sérfræðingar hafa sagt að samkomu­lagið marki endalok aldar jarðefnis­eldsneytis og að nú muni öll ríki sem sammældust um samninginn taka alvöru skref í átt að nýjum orku­gjöfum. Banda­ríkin framleiða mikið af jarðefna­eldsneyti og eiga í miklum og flóknum alþjóð­legum samskiptum við mörg ríki sem eru stór­fram­leiðendur slíks, meðal annars í Mið-austur­löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár