Ályktun samþykkt á þingi Framsóknar um að rannsóknarnefnd verði skipuð

Ályktun var lögð fyrir þing Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­þykkt um helg­ina að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd um þær aðgerðir sem stjórn­völd og fjár­mála­fyr­ir­tæki réð­ust í eftir hrunið.

Ályktun var lögð fyrir þing Fram­sókn­ar­flokks­ins í gær 11. febr­úar að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd um þær aðgerðir sem stjórn­völd og fjár­mála­fyr­ir­tæki réð­ust í eftir hrunið.

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna og þriðji maður á lista Fram­sóknar í Reykja­vík fyrir næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, greindi frá þessu í Facebook-færslu í gær.

Samkvæmt færsl­unni var álykt­unin sam­þykkt með nær öllum greiddum atkvæðum. Ást­hildur segir þetta vera sigur fyrir Hags­muna­sam­tök heim­il­anna vegna þess að þau hafi reynt að ná athygli stjórn­mála­flokka um þetta mál með litlum árangri fram til þessa.

„Rannsaka þarf aðgerðir stjórn­valda og fjár­mála­fyr­ir­tækja í kjöl­far hruns­ins og finna út raun­veru­lega stöðu fjár­mála­kerf­is­ins en það verður ekki gert án þess að rann­saka lög­mæti þeirra aðgerða sem ráð­ist var í eftir hrunið, t.d. varð­andi end­ur­út­reikn­inga geng­is­tryggðra lána. Einnig þarf að skoða hvort úrvinnsla verð­tryggðra og geng­is­tryggðra lána hafi verið í sam­ræmi við lög- og stjórn­ar­skrár­varin rétt­indi neyt­enda og skuld­bind­ingar Íslands sam­kvæmt EES-samn­ingnum.

Stöðva skal allar aðfarir sem byggja á fyrr­nefndum aðgerðum á meðan gerð slíkrar rann­sókn­ar­skýrslu stendur yfir,“ segir í færslu Ást­hildar.

Von hennar er sú að þeir félagar Hags­muna­sam­taka heim­il­anna sem eru í stjórn­mála­flokkum vinni þess­ari til­lögu fylgi innan sinna flokka og/eða skori á þá að veita henni stuðn­ing þegar hún kemur fyrir þingið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár