Óheimilt verði að skipa í embætti ráðuneytisstjóra með flutningi

Þing­maður Sam­fylk­ingar fer fyrir frum­varpi um breyt­ingar á lögum um stöðu­veit­ingar þar sem ráð­herra verður óheim­ilt að skipa í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra með flutn­ingi. Einnig er lagt til að tak­marka heim­ildir ráð­herra til stöðu­veit­inga án aug­lýs­ingar.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður breytinga á lögum um stöðuveitingar.
Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður breyt­inga á lögum um stöðu­veit­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Óheimilt verður að skipa í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra með flutn­ingi og flutn­ingur ann­arra emb­ætt­is­manna verður und­an­tekn­ing frá almennri meg­in­reglu um aug­lýs­inga­skyldu.

Þetta eru meðal til­lagna laga­frum­varps um breyt­ingu á lögum um stöðu­veit­ingar sem útbýtt verður á Alþingi á næst­unni. Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins.

Breyt­ing­arnar snúa að 36. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins frá 1996, greinar sem ítrekað hefur verið beitt við skipan emb­ætt­is­manna upp á síðkastið, síð­ast af Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, þegar hún skip­aði þjóð­minja­vörð án aug­lýs­ingar.

Samkvæmt grein­inni getur stjórn­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, flutt hann úr einu emb­ætti í annað. Í drögum að grein­ar­gerð um breyt­ingar á stöðu­veit­ingum er lagt til að heim­ildir stjórn­valda til að víkja frá meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu emb­ætta verði þrengdar.

Þannig verði óheim­ilt með öllu að skipa í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra með flutn­ingi og ítrekað að flutn­ings­heim­ild 36. greinar lag­anna verði und­an­tekn­ing frá almennri meg­in­reglu um aug­lýs­inga­skyldu.

Flutningur ríkisendurskoðanda í starf ráðuneytisstjóra ógn við sjálfstæði eftirlitsstofnana á vegum Alþingis

Í frum­varp­inu er einnig mælt fyrir um að dóm­arar, emb­ætt­is­menn við dóm­stóla og dóm­stóla­sýsl­una og emb­ætt­is­menn sem starfa á vegum Alþingis og eft­ir­lits­stofn­ana þess, þ.e. skrif­stofu­stjóri Alþingis, umboðs­maður Alþingis og rík­is­end­ur­skoð­andi, verði með öllu und­an­skildir ákvæð­inu.

„Þannig verði tek­inn af allur vafi um að ákvæðið heim­ilar ekki flutn­ing milli hinna þriggja vald­þátta rík­is­ins og tekur aðeins til flutn­ings emb­ætt­is­manna á vegum fram­kvæmd­ar­valds­ins,“ segir í frum­varps­drög­unum.

Þar segir jafn­framt að með þessum breyt­ingum er verið að bregð­ast við „því hættu­lega for­dæmi“ sem sett var í upp­hafi þessa árs þegar Skúli Eggert Þórð­ar­son, þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, var fluttur yfir til nýs menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis og skip­aður þar ráðu­neyt­is­stjóri með vísan til 36. grein­ar­innar. „Slík beit­ing ákvæð­is­ins er ógn við sjálf­stæði þeirra eft­ir­lits­stofn­ana sem starfa á vegum Alþingis sem liður í eft­ir­lits­hlut­verki þess gagn­vart fram­kvæmd­ar­vald­inu,“ segir í frum­varps­drög­unum.

Sjö af tólf ráðuneytisstjórum ráðnir án auglýsinga

Ráðu­neyt­is­stjórar eru æðstu stjórn­endur ráðu­neyta að ráð­herrum sjálfum und­an­skildum. Ráðu­neytum var fjölgað úr tíu í tólf við end­ur­nýjun rík­is­stjórn­ar­sam­starfs Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í lok síð­asta árs.

Sjö af tólf núver­andi ráðu­neyt­is­stjórum voru fluttir í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra án þess að staðan væri aug­lýst og frá því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við árið 2017 hafa sex af þeim níu sem enn eru ráðu­neyt­is­stjórar tekið við emb­ætti án þess að fag­legt umsókn­ar­ferli færi fram.

Í sam­an­tekt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins yfir flutn­ing emb­ætt­is­manna milli emb­ætta á tíma­bil­inu 2009 til 2022, sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í gær, kemur fram að hlut­falls­lega flestir flutn­ingar áttu sér stað þegar skipað var í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Alls voru átta ráðu­neyt­is­stjórar skip­aðir í kjöl­far aug­lýs­ingar á tíma­bil­inu en ell­efu emb­ætt­is­menn voru fluttir í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Tveir af þeim flutn­ingum voru gerðir á grund­velli breyt­inga á skipan ráðu­neyta.

Fimmt­ungur emb­ætt­is­skip­ana frá 2009 voru gerðar án auf­lýs­ingar. Í sam­an­tekt­inni kemur fram að 267 emb­ætt­is­skip­ana af 334 síð­ustu 12 ár voru gerðar í kjöl­far aug­lýs­ingar en í 67 til­fellum var emb­ætt­is­maður fluttur í annað emb­ætti, ýmist á grund­velli flutn­ings­heim­ildar í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands eða sér­stakra laga­heim­ilda. Í 39 til­fellum af 67 þar sem emb­ætt­is­maður var fluttur í annað emb­ætti, var það gert í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana eða ráðu­neyta.

Breytingarnar lagðar fram til að bregðast við freistnivanda

Í grein­ar­gerð frum­varps­breyt­ing­anna segir að litið hefur verið á aug­lýs­inga­skyld­una sem mik­il­væga vörn gegn geð­þótta­stjórn­sýslu og klík­u­ráðn­ingum, leið til að auka gagn­sæi og traust gagn­vart hand­höfum opin­bers valds.

Í nið­ur­lagi grein­ar­gerð­ar­innar er vísað í orð Ólafs Jóhanns­sonar, laga­pró­fess­ors og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, sem hann rit­aði fyrir rúm­lega 70 árum og sagði að að sjaldan væri meiri áhættu á mis­beit­ingu valds og hlut­drægni en við stöðu­veit­ingar. „ Nú á tímum er hið raun­veru­lega veit­ing­ar­vald oft­ast nær í höndum póli­tískra ráð­herra, sem freist­ast oft til að mis­nota það til fram­dráttar flokks­mönnum sínum,“ skrif­aði Ólafur.

Í frum­varps­drög­unum kemur fram að breyt­ing­arnar eru lagðar fram til að bregð­ast við þessum freistni­vanda, „setja veit­ing­ar­valds­höfum auknar skorður og auka traust lands­manna gagn­vart stjórn­kerf­inu“.

Engir þing­fundir eru fyr­ir­hug­aðir í vik­unni vegna kjör­dæma­daga. Næsti þing­fundur er á dag­skrá eftir viku og ætla má að frum­varp­inu verði útbýtt þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár