Blatter endurkjörinn sem forseti FIFA - Ali dró framboð sitt til baka

Jórdanski prinsinn Ali Bin al-Hussein dró framboð sitt til forseta Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins til baka eftir fyrstu umferð kosninga. Það átti að kjósa aftur þar sem hvorugur fram­bjóðandinn til embættisins fékk 2/3 hluta atkvæða í kosningunni sem fór fram í dag. Í síðari kosningunni hefði nægt að fá meirihluta atkvæða til að vinna. Blatter fékk 133 atkvæði en Ali Bin al-Hussein 73.

Sepp Blatter verður því forseti knattspyrnu­sambandsins áfram næstu fjögur árin og situr fimmta kjör­tímabilið. Hann hefur lofað því að hætta eftir þetta kjör­tímabil.

Í miðvikudag voru níu hátt­settir menn innan FIFA hand­teknir og ákærðir í Banda­ríkjunum fyrir mútuþægni, peninga­þvætti og fleira. Síðan þá hafa öll spjót staðið á Blatter, sem hefur neitað að draga framboð sitt til baka þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um það. Mikill meirihluta evrópskra knattspyrnu­sambanda, þar á meðal KSÍ, höfðu lýst því yfir að þau ætluðu ekki að kjósa Blatter. Michel Platini, forseti knattspyrnu­sambands Evrópu, UEFA, sagði á blaðamanna­fundi í gær að nóg væri komið. „Fólk vill ekki Sepp Blatter lengur og ég vil hann ekki lengur heldur. Ég hef alltaf sagt að við viljum að FIFA sé sterkt en FIFA er ekki sterkt lengur. Ég er enn að reyna að sannfæra nokkur evrópsk knattspyrnu­sambönd sem eru ekki alveg sannfærð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár