Lögreglan í LA skaut mann í til bana - myndband vekur reiði

Lögreglan í Los Angeles (LA) skaut heimilis­lausan mann til baka í nótt, en myndband atburðinum hefur vakið mikla athygli og reiði á samfélags­miðlum í dag. Frétta­miðillinn Revolution News greindi fyrstur frá málinu, með því að birta myndband af atburðinum á Facebook síðu sinni.

Lögreglan í LA hefur ekki enn gefið út yfir­lýsingu, um ástæður þess að maðurinn var skotinn, en sé mið tekið af mynd­bandinu þá er erfitt að segja til um hvað leiddi til þess að lögreglu­menn reyndu að ná manninum niður í sameiningu og ná tökum á aðstæðum. Það eina sem lögreglan hefur gefið út til þessa, er að maðurinn sé látinn eftir að lögreglan skaut hann til bana.

LA Times birtir mynd­bandið á forsíðu sinni, og segir að lögreglu­mann ítrekað hafa öskrað að manninum, um að láta byssuna frá sér („drop the gun“). Frekari yfir­lýsinga vegna atviksins, frá lögreglu­yfirvöldum í LA, er að vænta, að sögn LA Times.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár