Fundur Alþingis á Þingvöllum kostar 80 milljónir

Áætlaður kostn­aður við hátíð­ar­þing­fund Alþingis á Þing­völlum á morgun og hátíð­ar­kvöld­verð þing­for­seta er 70 til 80 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn gæti þannig farið allt að 78 pró­sent umfram áætlun.

Áætlaður kostn­aður við hátíð­ar­þing­fund Alþingis á Þing­völlum á morgun og hátíð­ar­kvöld­verð þing­for­seta er 70 til 80 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn gæti þannig farið allt að 78 pró­sent umfram áætlun. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar frá því í júní­lok kemur fram að kostn­aður í rekstr­ar­á­ætlun árs­ins vegna fund­ar­ins hafi verið um 45 millj­ónir. Þó væri ljóst að eftir því sem umfang við­burð­ar­ins hefði skýrst gæti kostn­aður orðið eitt­hvað meiri.

Fund­ur­inn verður sýndur í beinni útsend­ingu, settur hefur verið upp sér­stakur pallur fyrir neðan Lögberg sem ætl­aður er þing­mönnum og boðs­gestum.

Meðal boðs­gesta eru for­seti Íslands og þing­for­setar Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkja. Forseti Alþingis mun svo bjóða þing­mönnum og gestum til hátíð­ar­kvöld­verðar.

Fund­ur­inn sem hefst klukkan 14 á morgun á Þing­völlum er liður í hátíð­ar­höldum í til­efni af 100 ára full­veld­is­af­mæli Íslands. Þar stendur til að sam­þykkja þings­á­lykt­un­ar­til­lögur um stofnun Barna­menn­ing­ar­sjóðs, bygg­ingu nýs haf­rann­sókna­skips og útgáfu rit­verka um Þing­velli í íslenskri mynd­list og bók­mennta­sögu frá land­námi til 21. aldar.

Á morgun verða 100 ár liðin frá und­ir­ritun samn­inga um sam­bands­lögin. Lögin tóku gildi 1. des­em­ber 1918 eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um haustið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár