Fjórir af tíu tíundubekkingum „langt á eftir“ í lesskilningi

Engar upplýsingar liggja fyrir í menntamála­ráðuneytinu um hvaða kennslu­aðferðir eru notaðar í lestri í einstaka skólum, samkvæmt svari Guðmundar Inga Kristins­sonar ráðherra í þinginu. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðis­flokks og kennari, segir menntamála­ráðherra ekki hæfan í starfið og gagnrýnir að ekki séu teknar upp aðferðir við lestrar­kennslu sem hafi virkað í hundruð ára.

Fjórir af hverjum tíu íslenskum nemendum í 10. bekk teljast „langt á eftir“ í lesskilningi samkvæmt PISA-könnuninni 2022. Á sama tíma skara einungis þrjú prósent nemenda fram úr í lesskilningi, það er að segja ná hæstu hæfni­þrepum þar sem krafist er gagn­rýninnar hugsunar, samþættingar upplýsinga úr ólíkum textum og mats á áreiðanleika heimilda. 

Þetta kemur fram í svari mennta- og barnamála­ráðherra við fyrir­spurn Jóns Péturs Zimsen, þingmanns Sjálfstæðis­flokks, á Alþingi. Hann segir það skandal að kennslu­aðferðum í lestri sé ekki breytt, þegar fyrir liggi að þær virki ekki jafn vel og þær sem áður voru notaðar. Í svari ráðherra er jafnframt viðurkennt að stjórn­völd hafi enga yfirsýn yfir hvaða lestrar­kennslu­aðferðir eru notaðar í grunn­skólum landsins, hvorki á landsvísu né eftir sveitar­félögum.

Engin miðlæg vitneskja um aðferðirnar

Aðal­námskrá mælir ekki fyrir um ákveðnar aðferðir og kennarar og skólar hafa fullt faglegt frelsi til að velja vinnu­brögð. Engum upplýsingum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Núna er eg alveg svoleiðisgattuðaþvihvaðfáir virðast vera læsir idagensvoerlikamargtannaðsemglepurungdóminnidagsem tefurþaðfrálærdóminumsemekkivarþegaregvarung
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár