Prentútgáfu the Independent hætt í lok mars

Evgeny Lebedev, eigandi og útgefandi breska dagblaðsins the Indenpendent, hefur tilkynnt að prentun og útgáfu blaðsins, og helgar­blaðsins Independent on Sunday, verði hætt á næstunni. Síðasta eintakið af the Independent mun koma út 26. mars næst­komandi. Þar með lýkur 30 ára sögu blaðsins.

Samkvæmt frétt the Guardian um málið segir Lebedev að breytingarnar séu liður í því að færa áherslur the Independent frá prenti til staf­rænnar miðlunar. Prent­miðlar séu í hnignun en stafræn miðlun í miklum vexti. Frétta­vefsíða the Independent, sem verður rekin áfram, er nú með 58 milljónir mánaðar­lega notendur og samkvæmt Lebedev skilar hún hagnaði. Hann reiknar með því að tekjur hennar muni vaxa um 50 prósent á þessu ári. „Dagblaða­iðnaðurinn er að breytast og sú breyting er drifin áfram af lesendum. Þeir eru að sýna okkur að framtíðin sé stafræn. Með þessari ákvörðun þá varð­veitum við Independent vöru­merkið og hún gerir okkur kleift að fjárfesta áfram í hágæða ritstjórnar­efni sem laðar sífellt fleiri lesendur að vefsíðunum okkar.“

Á næstunni verða umsvif the Independent á vefinu aukin mikið til að reyna að gera Independent.co.uk að alþjóð­legu stafrænu frétta­vörumerki. Auk þess verður sett í loftið áskriftar-app. Ekki hefur verið tilgreint hversu margir þeirra 150 starfs­manna sem starfa á prent­miðlum Independent missa vinnuna.

Lebedev hefur fjárfest gríðar­lega í breskum fjöl­miðlum á undan­förnum árum. Frá því í september 2014 hefur hann keypt miðla fyrir um 100 milljónir punda, um 18,5 milljörðum króna. Þar af fóru um 65 milljónir punda, um tólf milljörðum króna, í að kaupa the Independent og tengda miðla.

Lebedev sendi starfs­fólki sínu bréf vegna breytinganna. Það má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár