Starfsmönnum forsætisráðuneytisins fjölgar um 29,5 prósent á rúmum þremur árum

Starfs­mönnum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fjölg­aði um þrettán frá jan­úar 2016 til apríl 2019. Breyt­ingar innan ráðu­neyt­is­ins hafa haft umtals­verð áhrif á fjölgun starfs­fólks.

Starfs­mönnum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fjölg­aði um 29,5 pró­sent frá jan­úar 2016 til apríl 2019. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra, Katrínar Jak­obs­dóttur, við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um starfs­menn á launa­skrá for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í svar­inu segir að í jan­úar árið 2016 hafi 44 starfs­menn verið á launa­skrá for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Í jan­úar árið 2017 hafi þeir verið 46, 49 í jan­úar 2018, 54 í jan­úar 2019 og í apríl 2019 hafi þeir verið 57.

Þó er vert að taka fram að sam­kvæmt ráðu­neyt­inu end­ur­spegla fram­an­greindar tölur ekki fjölda stöðu­gilda en mis­jafnt er á milli ára hve margir starfs­menn eru í hluta­störfum eða í tíma­bundnum störfum.

Nýlegar breytingar hafa haft mikil áhrif á fjölgun starfsfólks

„Á tíma­bil­inu sem spurt er um hefur skipu­rit for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins tekið nokkrum breyt­ingum, meðal ann­ars í tengslum við breyt­ingar á for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna milli ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands og styrk­ingu á sam­hæf­ing­ar­hlut­verki ráðu­neyt­is­ins,“ segir í svari ráð­herra.

Þá kemur fram að meðal nýlegra breyt­inga sem hafi haft umtals­verð áhrif til fjölg­unar starfs­fólks, sam­tals um átta starfs­menn, sé ann­ars vegar til­færsla jafn­rétt­is­mála til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í jan­úar árið 2019 en sam­fara því hafi fimm starfs­menn flust til ráðu­neyt­is­ins, auk þess sem skip­aður hafi verið skrif­stofu­stjóri yfir nýrri skrif­stofu jafn­rétt­is­mála, og hins vegar flutn­ingur yfir­lestr­ar­verk­efna vegna stjórn­ar­frum­varpa, stjórn­ar­til­lagna og ann­arra stjórn­ar­skjala frá Alþingi til ráðu­neyt­is­ins. Við þá breyt­ingu hafi tvö stöðu­gildi flust til ráðu­neyt­is­ins frá skrif­stofu Alþingis í jan­úar árið 2018.

Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á árunum 2007 til 2010, var skipuð í stöðu skrif­stofu­stjóra yfir nýrri skrif­stofu jafn­rétt­is­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um miðjan febr­úar síð­ast­lið­inn en Katrín Jak­obs­dóttir skip­aði hana í starf­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár