Fyrrverandi borgarstjóri skipuð skrifstofustjóri jafnréttismála í forsætisráðuneytinu

Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir hefur verið skipuð yfir nýrri skrif­stofu jafn­rétt­is­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Hún var einn sex umsækj­enda sem metnir voru vel hæfir.

Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á árunum 2007-2010, hefur verið skipuð í stöðu skrif­stofu­stjóra yfir nýrri skrif­stofu jafn­rétt­is­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skipar Stein­unni Valdísi í starfið.

Í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu kemur fram að umsækj­endur um emb­ættið hafi verið 30 tals­ins. Ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd mat sex umsækj­endur vel hæfa og var Steinunn Valdís ein þeirra.

Þar segir enn fremur að Steinunn Valdís hafi víð­tæka þekk­ingu á jafn­rétt­is­málum. „Hún starf­aði m.a. fyrir Kven­fé­laga­sam­band Íslands árin 1992-1998 og sem fram­kvæmda­stjóri kvenna­heim­il­is­ins Hall­veig­ar­staða 1996-1998. Hún var borg­ar­full­trúi fyrir Kvenna­list­ann og síðar Reykja­vík­ur­list­ann og sat á þeim tíma í jafn­rétt­is­ráði. Hún var for­maður jafn­réttis­nefndar Reykja­vík­ur­borgar og for­maður Svanna, lána­trygg­ing­ar­sjóðs kvenna um ára­bil.“

Steinunn Valdís lauk BA-prófi í sagn­fræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og við­bót­ar­diplóma í opin­berri stjórn­sýslu frá sama skóla árið 2018. Árin 1986-1987 var Steinunn Valdís stjórn­ar­ráðs­full­trúi á launa­skrif­stofu fjár­mála­ráðu­neytis, borg­ar­full­trúi árin 1994-2007 og borg­ar­stjóri í Reykja­vík 2004-2006. Steinunn Valdís átti sæti á Alþingi 2007-2010. Frá 2011-2017 var hún sér­fræð­ingur og stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu inn­viða í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Frá febr­úar 2017 hefur hún starfað sem sér­fræð­ingur og stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu ferða­mála í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár