Norðurál telur Landsvirkjun misnota stöðu sína og leitar til Samkeppniseftirlitsins

Norðurál telur að Lands­virkjun hafi „sem markaðs­ráðandi aðili á markaði með skammtíma­orku misnotað stöðu sína gagnvart Norðuráli með því að krefjast ósann­gjarns og óhóflegs endur­gjalds fyrir umfram­orku“ og leitar eftir áliti frá SKE um málið.

Norðurál hefur sent erindi til Samkeppnis­eftirlitsins og óskað íhlutunar þess, vegna þess sem Norðurál telur vera misnotkun Lands­virkjunar á markaðs­ráðandi stöðu á skammtíma­markaði með raforku. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Norðuráli.

Í tilkynningu fyrir­tækisins segir að Norðurál hafi í allnokkur ár ekki haft nægjanlega orku í gegnum langtíma­samninga til að halda uppi fullri fram­leiðslu í álveri sínu á Grundar­tanga og hafi tíma­bundið þurft að kaupa orku á skammtíma­markaði til að fylla upp í skerðingar vegna viðhalds hjá öðrum orku­fram­leiðendum sem Norðurál kaupir orku af.

Einnig segir að í byrjun sumars hafi þessi staða komið upp og álverið þurft að kaupa raforku á skammtíma­markaði til að forðast tjón í kerskála og til að geta haldið uppi fullri fram­leiðslu.

„Nær öll raforka á íslenska skammtíma­markaðnum er framleidd af Lands­virkjun. Eftir­spurn eftir raforku hafði dregist saman á Íslandi og staða í lónum Lands­virkjunar var yfir meðallagi. Við slíkar aðstæður ætti verð að vera lægra en ella. Það verð sem Lands­virkjun vildi fá var hins vegar yfir því verði sem Norðurál keypti frá minni orku­fram­leiðanda, að því marki sem sá hafði slíka orku til reiðu, var yfir meðal­verði Lands­virkjunar árin á undan og yfir verði á Norræna skammtíma­markaðnum, Nord Pool,“ segir í tilkynningu Norðuráls.

Norðurál telur þannig að Lands­virkjun hafi „sem markaðs­ráðandi aðili á markaði með skammtíma­orku misnotað stöðu sína gagnvart Norðuráli með því að krefjast ósann­gjarns og óhóflegs endur­gjalds fyrir umfram­orku.“

„Það er eðlilegur hluti af viðskiptum fyrir­tækja á Íslandi að þurfa öðru hverju að leita til opinberra aðila eins og Samkeppnis­eftirlitsins til að greiða úr deilu­málum og fá sinn hlut réttan. Ég legg hins vegar áherslu á að samstarfið við Lands­virkjun hefur almennt verið mjög gott hingað til og ég vænti þess að svo verði áfram,“ er haft eftir Gunnari Guðlaugs­syni forstjóra Norðuráls í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár