E-töflur, ketamín og metamfetamín löglegt á Írlandi í einn dag

E-töflur, ketamín, metamfetamín og hundruð annarra fíkniefna urðu lögleg á Írlandi í dag. Ástæðan er sú að lög um misnotkun fíkniefna frá árinu 1997 voru úrskurðuð í andstöðu við stjórnar­skrá fyrir dómstólum þar í landi og féllu við það úr gildi. Lögin ná yfir vímugjafa sem búnir eru til úr löglegum efnum. Þekkt fíkniefni á borð við heróín, kókaín og kannabis eru áfram ólögleg þar sem önnur lög banna neyslu þeirra. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Írsk stjórn­völd vinna nú að því að setja lög sem laga þessa stöðu og er talið að þau verði samþykkt í kvöld. Þrátt fyrir það munu lögin ekki geta tekið gildi fyrr en daginn eftir að þau eru undir­rituð og því er neysla ofangreidra fíkniefna lögleg í Írlandi í dag.

Í tilkynningu frá írskum stjórn­völdum kemur fram að fíkniefna­salar ættu ekki að fagna þessum tíðindum sérstak­lega. Sala og dreifing efnanna er enn lögbrot þar sem sú iðja heyrir undir aðra löggjöf en þá sem var felld úr gildi í dag.

. @campaignforleo statement on the temporary legalisation of ecstasy (among other drugs) pic.twitter.com/tO84E7H8Xf

— TheJournal Politics (@TJ_Politics) March 10, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár