Kjarninn mælir með... Lög gegn útlitsdýrkun og magnaðar myndir

Við lifum sögulega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlendis. Ritstjórn Kjarnans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjallanir sem að mati ritstjórnar eru vandaðar, áhuga­verðar og skemmtilegar, hver með sínum ólíka hætti.

Skelfingin í Naíróbí – The New York Times


Hryðju­verka­sam­tökin Al Shabab, sem eiga rætur í Sómalíu og hafa tengsl við hin alræmdu Al-Kaída, réð­ust á Garissa Uni­versity College háskól­ann í Naíróbí í Kenýa, og drápu að minnsta kosti 143 nem­endur við skól­ann. Umfjöllun New York Times gefur góða mynd af þessum skelfi­lega atburði, en svo virð­ist sem víga­menn­irnir hafi hand­valið nem­endur úr hópnum sem voru múslimar og leyft þeim að kom­ast undan.

Hér má síðan sjá umfjöllun Quartz þar sem því er velt upp, að stjórn­völd í Kenýa hafi hugsanlega sofið á verðinum og gert lítið úr hættunni sem stafaði af Al Shabab til þess að vernda ferða­þjónustuna í landinu.

https://www.youtube.com/watch?v=-zsn2w-Cfd4

Áhuga­verðar umfjallanir um skelfi­legan atburð.

Ótrúlegar myndir – Chongqing Express


Ljós­mynd­ar­inn Tim Franco, sem fæddur er í París en hefur sinnt alþjóð­legum ljós­mynda­verk­efnum á sínum starfs­ferli, dvaldi í borg­inni Chongqing í Kína og mynd­aði þar bygg­ingar, mann­líf og skipu­lag fyrir Chongqing Express, fjöl­miðil í borg­inni. Vef­mið­ill­inn frá­bæri Quartz tók mynd­irnar síðan upp á sína arma, og gerði umfjöllun um þær. Mynd­irnar eru slá­andi og glæsi­legar í senn. Mynd­irnar sýna dökkar hliðar þeirrar ógn­ar­hröðu upp­bygg­ingar sem átt hefur sér stað í borg­inni.

Þetta er gott dæmi um hversu stórkostlegt ljósmynda­formið getur verið. Ekkert kemur í staðinn fyrir góðar myndir.

Skál! – Quartz.


Eitt af því sem hefur blómstrað eftir hrunið á fjár­mála­mörk­uðum, er útflutn­ingur á skosku vískíi til Banda­ríkj­anna. Árið 2008 voru 280 millj­ónir lítra af vískí fluttir frá Skotlandi til Banda­ríkj­anna, en árið 2011 var talan komin upp í 360 millj­ónir lítra. Nú er aftur aðeins farið að halla undan fæti hjá Skotunum, en ástæðan er fyrst og síð­ast harðn­andi sam­keppni. Banda­rískt vískí, eins og Jack Daniels, nýtur vax­andi vin­sælda. Banda­ríkin er næst mik­il­væg­asti mark­að­ur­inn í heim­inum fyrir skoskt vískí, á eftir Frakk­landi.

Ekki kannski hefð­bundnasta útflutnings­varan til þess að fjalla um, en hún skiptir miklu máli fyrir efnahags­lífið í Skotlandi.

Frakkar gegn útlitsdýrkuninni – The Verge.


Frakk­land hefur alltaf verið vett­vangur hátísk­unnar, þar sem straum­arnir mót­ast í þeim risa­vaxna bransa. Eitt af því sem fylgt hefur hátísk­unni er mikil umræða um útlits­dýrk­un­ina, og hvernig hún birt­ist í hönnun og ekki síður aug­lýs­ingum. Nú hefur þingið í Frakk­landi sam­þykkt lög sem miða að því að vinna gegn útlits­dýrkun og anórexíu, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum í Frakk­landi eru um 30 til 40 þús­und konur í land­inu, sem þjást af anórexíu. Í lög­unum er meðal ann­ars heim­ild til þess að refsa þeim sem ráða konur til mód­el­starfa, þar sem óeðli­legar útlits­kröfur eru gerðar til kvenna.

Áhugaverð umfjöllun, sem sýnir að það er ýmislegt hægt að gera til að sporna gegn útlits­dýrkuninni sem birtist ekki síst í auglýsingum fata­fram­leiðenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár