Indversk fyrirtæki brjóta gegn lögum um konur í stjórnum

Indversk fyrirtæki sem eru skráð á markað höfðu tíma til 1. apríl til þess að ráða í það minnsta eina konu í framkvæmda­stjórn og stjórn, samkvæmt lögum samþykkt hafa verið í landinu. Fjölmörg fyrirtæki uppfylla ekki þessi skilyrði, þrátt fyrir lögin, og eiga þau von á sektum.

Samkvæmt umfjöllun Forbes þurftu fyrir­tækin að tilnefna konu í sem væri framkvæmda­stjóri, eða stjórn­andi, í stjórn fyrir 1. apríl. Samtals eru 1.456 fyrirtæki skráð í kaup­höllina í Indlandi en mörg fyrir­tækjanna tóku ekki við sér fyrr en í síðustu vikunni í mars, og skipuðu þá konu í stjórn. Samtals voru það 277 fyrirtæki sem skipuðu konu í stjórn í síðustu vikunni fyrir gildis­töku laganna, þar af voru 76 þeirra sem gerðu það degi áður en lögin tóku gildi.

Um 180 fyrirtæki hafa ekki uppfyllt skilyrðin, og eiga þau von á sektum, upp á allt að fjórar milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur allt að 580 milljónum króna, samkvæmt umfjöllun Forbes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár