Sækja þrettán milljarða til að borga fyrir kjarasamninga í ár

Gert er ráð fyrir að þau verk­efni sem stjórn­völd lof­uðu að ráð­ast í til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga verði öll hafin eða komin að fullu til fram­kvæmda um mitt ár. Þau kosta mikið og því þarf fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að sækja sér fjár­heim­ildir til að borga fyrir verk­efnin.

Nýtekinn við
Nýtekinn við Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra snemma i síð­asta mán­uði eftir þær hróker­ingar sem urðu í rík­is­stjórn­inni þegar Katrín Jak­obs­dóttir yfir­gaf hana og fór í for­seta­fram­boð. Mynd: Golli

Sigurður Ingi Jóhanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp til fjár­auka­laga til að sækja fjár­heim­ildir upp á 12,9 millj­arða króna sem ekki var gert ráð fyrir í fjár­lögum árs­ins 2024 þegar þau voru afgreidd á þingi fyrir tæpum fimm mán­uðum síðan. Ástæða þess að stjórn­völd þurfa að gera þetta er ákvörðun þeirra um að liðka fyrir gerð lang­tíma­kjara­samn­inga fyrr á árinu með því að lofa aðgerð­ar­pakka sem kostar 83 millj­arða króna á gild­is­tíma samn­ing­anna, sem eru til fjög­urra ára. 

Hluti þeirra útgjalda fellur til í ár, áður­nefndir 12,9 millj­arðar króna, en gert er ráð fyrir að verk­efnin verði öll hafin eða komin að fullu til fram­kvæmda um mitt ár. Tveir þriðju hlut­ar þeirra kjara­bóta sem fást á fyrsta ári eft­ir gildis­töku ný­ju kjara­samn­inga koma enda frá hinu op­in­bera, og þriðj­ung­ur úr at­vinnu­líf­inu.

Í fyrsta lagi er um að ræða sér­stakan ein­skiptis vaxta­stuðn­ing til heim­ila með íbúða­lán …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár