Olían lækkan enn - Hefur fallið um rúmlega 6 prósent í dag

Ekkert lát er á olíuverðs­lækkun á heims­markaði. Titringur er í Noregi vegna þessa, enda miklir hagsmunir undir fyrir Norðmenn.

Heims­markaðsverð á hráolíu hefur fallið um 4,16 prósent í dag á markaði í Banda­ríkjunum, og kostar tunnan nú um 30 Bandaríkja­dali. Það er lægsta verð í meira en áratug, eða frá því um mitt ár 2003. Verð­fallið á fimmtán mánuðum nemur 72 prósentum.

Á Wall Street Journal kemur fram að ástæða lækkunarinnar sé rakin til minnkandi eftir­spurnar í heims­búskapanum, ekki síst í Kína, þar sem hagtölur hafa komið fram að undan­förnu sem staðfesta meiri hægagangur væri í kínverska hagkerfinu en spár höfðu gert ráð fyrir.

Í Noregi, þar sem olíu­iðnaður er hryggjar­stykkið í efnahags­lífinu, er mikill titringur vegna verð­fallsins og hefur Statoil, þar sem norska ríkið á tæplega 70 prósent hlut, fallið í verði sjö daga í röð, og í dag var verð­fallið 2,8 prósent.

Hér á landi ætti þessi verð­lækkun á heims­markaði að skila sér í ódýrara bensíni. Atlantsolía sendi frá sér frétta­tilkynningu í dag og lækkar bensín um tvær krónur og dísel um eina krónu. Ekki hefur komið tilkynning um lækkun frá öðrum olíu­félögum.

Verð á bensíni hjá Atlantsolíu verður þá 190,60 og á dísel 175,60 kr. Bensín hefur þannig lækkað um 60 krónur frá sumrinu 2014.

Innkaups­verð á bensín­lítra er í dag rúmar 40 krónur eða það sama og í janúar 2008. „Þá var hinsvegar hlutur ríkisins 70 krónur en er í dag 110 krónur eða 40 krónum hærri,“ segir í tilkynningu frá Atlantsolíu.

Bíleigendur myndu því spara um 10 milljarða á ársgrundvelli ef hlutur ríkisins í bensín­lítranum væri sá sami og fyrir 8 árum.

„Að sama skapi skiptir lækkandi innkaups­verð gríðar­miklu máli í gjaldeyris­sparnaði en í desember 2013 var innkaups­verð á bensíni um 45 krónum hærra. Það gerði eldsneytis­innkaupin á bensíni um 580 milljónum króna hærri eða um 7 milljörðum á ársgrundvelli,“ segir í tilkynningu frá Atlansolíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár