Tíu mikilvægustu hlutirnir í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Það kennir ýmissa grasa á lista dagsins í dag, allt frá hryllilegum jarð­skjálfta í Nepal til ársfjórðungs­uppgjörs Apple.


  1. Nú hefur verið staðfest að minnst 3.617 manns létust í jarð­skjálftanum í Nepal um helgina. Skjálftinn var sá versti í landinu í 81 ár.

  2. Myndband úr grunn­búðum Mount Everest sýnir snjóflóð sem varð af völdum skjálftans.

  3. Vladimír Pútín Rúss­lands­forseti sagði í viðtali í gær að hann sæi ekki eftir nokkrum sköpuðum hlut í sambandi við innlimun Krímskaga í Rússland. Það hefði verið sögulegt réttlæti.

  4. Loftárás ísraelska hersins varð fjórum íslömskum hryðju­verkamönnum að bana á landa­mærunum við Sýrland. Mennirnir eru sagðir hafa verið að koma fyrir sprengi­efni.

  5. Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, og Angela Merkel Þýska­lands­kanslari ætla að halda áfram samskiptum sínum meðan á samninga­viðræðum Grikkja við lánardrottna sína stendur. Ríkið stendur frammi fyrir því að verða uppi­skroppa með peninga á næstu vikum.

  6. Nursultan Nazarbayev, forseti Kasakstan, vann líklega sigur í kosningum í landinu í gær. Útgöngu­spár benda til þess að hann hafi hlotið 97,5 prósent atkvæða, en hann hefur nú þegar verið við völd í 26 ár.

  7. Calbuco eldfjallið í Chile er enn óstöðugt og gæti gosið enn á ný, en það gaus tvisvar á einum sólarhing í síðustu viku.

  8. Þess var minnst í Þýska­landi, Króatíu og Frakk­landi í gær að 70 ár eru liðin frá því að fólk var frelsað úr þremur fanga­búðum nasista.

  9. Serbía ætlar að breyta heilu hverfi í Belgrade í húsnæðis- og verslunar­svæði fyrir efnameira fólk. Þetta verður gert með hjálp verktaka í Abu Dhabi, og samkomulag þess efnis hefur verið undir­ritað, fyrir þrjá milljarði dala.

  10. Apple mun kynna ársfjórðungs­uppgjör sitt í dag. Búist er við því að uppgjörið verði mjög sterkt, aðallega vegna mikillar sölu á iPhone-símum.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár