Guðmundur aftur ráðinn forstjóri Brims

Tæpum níu mán­uðum eftir að hafa hætt sem for­stjóri Brims hefur aðal­eig­andi félags­ins, Guð­mundur Krist­jáns­son, sest aftur í for­stjóra­stól­inn.

Guðmundur Kristjánsson.
Guð­mundur Krist­jáns­son. Mynd: Skjáskot/RÚV

Guð­mundur Krist­jáns­son, aðal­eig­andi Brims, hefur verið ráðin for­stjóri félags­ins á ný. Guð­mundur lét að störfum að eigin ósk 30. apríl í fyrra. Nokkrum dögum síðar sagði hann í við­tali við Kastljós að það hefði verið vegna þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði til­kynnt honum að það ætl­aði rann­saka meint yfir­ráð hans og tengdra félaga yfir Brim.

Hann sagði að eft­ir­litið hefði gert athuga­semdir við stöðu mála hjá Brimi alveg frá því að hann tók við for­stjóra­stólnum í júní 2018. Guð­mundur upp­lifði það þannig að Sam­keppn­is­eft­ir­litið væri að elt­ast við hann per­sónu­lega og hann lang­aði til að berj­ast við það. En skyn­semin hefði sagt honum að gera það ekki. „Það er ekki hægt að stöðva þróun fyr­ir­tækis út af einum mann­i.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­farið þar sem það sagð­ist ekki hafa kraf­ist þess að Guðmundu myndi láta af störfum sem for­stjóri.

Ekkert er fjallað um Sam­keppn­is­eft­ir­litið í til­kynn­ingu Brims til Kaup­hallar Íslands vegna end­ur­ráðn­ingar Guð­mundar.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Guðmundi að það sé ánægju­legt að vera kom­inn aftur til starfa. „Ég hef nýtt tím­ann vel og kem fullur krafts og til­hlökk­unar til starfa. Við höfum séð að þegar aðstæður í efna­hags­líf­inu verða erf­iðar, eins og síð­ustu miss­eri, að sjáv­ar­út­vegur er burð­ar­stólpi í íslensku sam­fé­lagi og við hjá Brim munum leggja okkar af mörkum til þess að svo verði áfram. Brim stundar ábyrgar veiðar og vinnslu enda er það grund­völlur fyrir því að tryggja til fram­tíðar trausta atvinnu og byggð á Íslandi.“

Brim er sú útgerð sem heldur á mestum kvóta á Íslandi, eða 10,13 pró­sent. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á 43,97 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­sent af öllum afla­heim­ild­um. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár