Krafðist þess ekki að Guðmundur léti af störfum sem forstjóri Brims

Fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu liggur að taka afstöðu til þess hvort breyt­ing hafi orðið á yfir­ráðum í Brimi, og ef svo er, hver áhrif þeirra eru á sam­keppni – en ekki að krefj­ast þess að Guð­mundur Krist­jáns­son láti af störfum sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Guðmundur í Brim
Guð­mundur í Brim Mynd: Brim

Sam­keppn­is­eft­ir­litið vill taka fram að það hefur ekki kraf­ist þess að Guð­mundur Krist­jáns­son, aðal­eig­andi Brims, láti af störfum sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu liggur að taka afstöðu til þess hvort breyt­ing hafi orðið á yfir­ráðum í Brimi, og ef svo er, hver áhrif þeirra eru á sam­keppni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá eft­ir­lit­inu vegna umfjöll­unar í fjöl­miðlum um athugun þess á yfir­ráðum í Brimi.

Guð­mundur Krist­jáns­son, aðal­eig­andi Brims, sagð­ist í Kast­ljós­svið­tali í gær hafa hætt sem for­stjóri félags­ins 30. apríl síð­ast­lið­inn vegna þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði til­kynnt honum tveimur dögum áður að það ætl­aði rann­saka meint yfir­ráð hans og tengdra félaga yfir Brim.

Hann sagði að eft­ir­litið hefði gert athuga­semdir við stöðu mála hjá Brimi alveg frá því að hann tók við for­stjóra­stólnum í júní 2018. Guð­mundur upp­lifði það þannig að Sam­keppn­is­eft­ir­litið væri að elt­ast við hann per­sónu­lega og hann lang­aði til að berj­ast við það. En skyn­semin hefði sagt honum að gera það ekki. „Það er ekki hægt að stöðva þróun fyr­ir­tækis út af einum manni,“ sagði hann.

[adspot]

[links]Í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins kemur fram að við úrlausn sam­runa­mála geti vaknað spurn­ingar um hvort stofn­ast hafi til yfir­ráða í til­teknu fyr­ir­tæki. Ef aðili með yfir­ráð í einu fyr­ir­tæki nær yfir­ráðum í öðru fyr­ir­tæki telj­ist sam­runi hafa átt sér stað í skiln­ingi sam­keppn­islaga. Ef velta við­kom­andi fyr­ir­tækja upp­fyllir til­tekin fjár­hæða­mörk kveði sam­keppn­is­lög á um að til­kynna beri Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um sam­run­ann áður en hann kemur til fram­kvæmda, svo eft­ir­litið geti metið hvort sam­run­inn skaði sam­keppni og kalli á íhlutun í sam­ræmi við sam­keppn­is­lög.

„Í sam­keppn­is­rétti miðar athugun á yfir­ráðum í ein­földu máli að því að kom­ast til botns í því hver eða hverjir geta í reynd haft afger­andi áhrif á ákvarð­anir og við­skipta­stefnu fyr­ir­tækis. Matið ræðst því t.d. ekki af til­teknum eign­ar­hlut­föllum einum og sér, heldur geta ýmis önnur atriði haft áhrif á matið, s.s. samn­ings­skuld­bind­ingar, mæt­ing á hlut­hafa­fundi, sam­eig­in­leg við­skipta­saga, fjöl­skyldu­tengsl og fleira sem dregur fram hvar yfir­ráð liggja í reynd,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Til athugunar hvort stofnast hafi til yfirráða áður en þau komust til framkvæmda

Enn fremur segir í til­kynn­ing­unni að til athug­unar sé nú hvort stofn­ast hafi til yfir­ráða í Brimi, sem til­kynna hefði átt lögum sam­kvæmt til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins áður en þau komust til fram­kvæmda. Nánar til­tekið er eft­ir­litið að taka afstöðu til þess hvort Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hf., Fiski­tangi ehf., KG Fisk­verkun ehf. og FISK-Seafood eign­ar­halds­fé­lag, sem er í dag RE-13 ehf., hafi myndað yfir­ráð í Brimi.

„Fyrir eft­ir­lit­inu liggur að afla frek­ari gagna og gefa öllum aðilum máls­ins ítrasta tæki­færi á að koma skýr­ingum og sjón­ar­miðum á fram­færi. Ekki er hægt að full­yrða um end­an­lega nið­ur­stöðu máls­ins fyrr en að und­an­geng­inni þess­ari rann­sókn.

Athug­unin hófst sem liður í rann­sókn á kaupum Brims á Fisk­vinnsl­unni Kambi hf. og Grábrók ehf. Til­kynnti Brim um þau kaup og tók eft­ir­litið afstöðu til máls­ins innan lög­bund­inna tíma­fresta. Í mál­inu færði Sam­keppn­is­eft­ir­litið rök fyrir yfir­ráðum Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og tengdra aðila í Brimi. Mótmæltu sam­runa­að­ilar því frummati eft­ir­lits­ins. Til þess að geta tekið afstöðu til kaupanna á Kambi og Grábrók skoð­aði eft­ir­litið hvort þau myndu hafa skað­leg áhrif á sam­keppni ef umrædd yfir­ráð í Brimi væru lögð til grund­vallar. Nið­ur­staðan varð sú að svo væri ekki og því ekki ástæða til að gera athuga­semdir við kaupin, hvort sem yfir­ráðin væru talin vera til staðar eða ekki,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Yfirráð í Brimi komu einnig til skoð­unar í tengslum við kaup Brims, þá HB Granda, á Ögurvík á árinu 2018. Á þeim tíma þótti ekki for­senda til þess, á grund­velli fyr­ir­liggj­andi gagna og gegn ein­dreg­inni neitun félag­anna, að slá því föstu að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefði öðl­ast yfir­ráð í Brimi, sam­kvæmt eft­ir­lit­inu.

Hins vegar hafi verið tekið fram að málið yrði hugs­an­lega tekið upp að nýju ef frek­ari vís­bend­ingar kæmu fram sem bentu til yfir­ráða. Slíkar vís­bend­ingar hafi nú komið fram.

Þarf að taka afstöðu til þess hvort þeim hafi borið að tilkynna um yfirráðin í sérstöku samrunamáli

Komist Sam­keppn­is­eft­ir­litið að þeirri nið­ur­stöðu í athugun sinni að stofn­ast hafi til fram­an­greindra yfir­ráða í Brimi þurfi enn fremur „að taka afstöðu til þess hvort umræddum aðilum hafi borið að til­kynna um yfir­ráðin í sér­stöku sam­runa­máli og hvort van­ræksla á því kalli á við­ur­lög sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum en lög­bundin til­kynn­ing­ar­skylda fyr­ir­tækja á breyt­ingum á yfir­ráðum er mik­il­vægur þáttur í sam­runa­eft­ir­liti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Ef nið­ur­staðan verður sú að til til­kynn­ing­ar­skylds sam­runa hafi stofn­ast þarf síðan að taka efn­is­lega afstöðu til hans.“

Í til­kynn­ing­unni er til­gangur sam­runa­reglna sam­keppn­islaga reif­aður. Hann er meðal ann­ars sagður vinna gegn skað­legri sam­þjöppun á mörk­uðum, sem skaðað geti hags­muni við­skipta­vina, keppi­nauta og almenn­ings. Þannig geti sam­keppni til að mynda skað­ast með því að mark­aðs­ráð­andi staða verði til eða styrk­ist.

„Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki starfa á fjöl­þættum mörk­uðum, þ.m.t. mörk­uðum fyrir við­skipti með afla­heim­ildir, til­teknar teg­undir veiða, vinnslu sjáv­ar­afla, fisk­mark­aði, útflutn­ingi afurða o.s.frv. Sam­þjöppun á ýmsum þess­ara mark­aða getur haft skað­legar afleið­ingar fyrir íslenskan almenn­ing og efna­hags­lífið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár