Hætti sem forstjóri Brims vegna Samkeppniseftirlitsins og upplifir ekki spillingu í sjávarútvegi

Guð­mundur Krist­jáns­son segir að hann langi að berj­ast við Sam­keppn­is­eft­ir­litið en að skyn­semin hafi sagt honum að gera það ekki. Hann sér ekki þá spill­ingu í sjáv­ar­út­vegi sem hann les um í fjöl­miðlum.

Guð­mundur Krist­jáns­son, aðal­eig­andi Brims, seg­ist hafa hætt sem for­stjóri félags­ins 30. apríl síð­ast­lið­inn vegna þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði til­kynnt honum tveimur dögum áður að það ætl­aði rann­saka meint yfir­ráð hans og tengdra félaga yfir Brim.

Hann segir að eft­ir­litið hafi verið að gera athuga­semdir við stöðu mála hjá Brim alveg frá því að hann tók við for­stjóra­stólnum í júní 2018. Guð­mundur upp­lifir það þannig að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé að elt­ast við hann per­sónu­lega og hann langi til að berj­ast við það. En skyn­semin hafi sagt honum að gera það ekki. „Það er ekki hægt að stöðva þróun fyr­ir­tækis út af einum manni.“

Þetta kom fram í við­tali við Guðmund í Kast­ljósi í kvöld. Þar sagð­ist hann enn fremur hafa haldið að Sam­keppn­is­eft­ir­litið ætti að vera fyrir neyt­endur á Íslandi, ekki til að elt­ast við útflutn­ings­fyr­ir­tæki eins og þau sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem hann stýrir. „Ég hef aldrei skilið þetta af hverju sam­keppn­is­eft­ir­litið er að eyða svona mik­illi orku í íslenskt útflutn­ings­fyr­ir­tæki.“

Guð­mundur tjáði sig einnig um stefnur sjö útgerð­ar­fé­laga sem stefndu íslenska rík­inu og fóru fram á 10,2 millj­arða króna vegna þess að þau töldu sig ekki hafa fengið úthlutað nægj­an­legum mak­ríl­kvóta um nokk­urra ára skeið. Eftir að málið komst í hámæli í síð­asta mán­uði drógu fimm útgerð­anna stefnur sínar til baka. Guð­mundur segir að málið hafi verið rætt ítar­lega í stjórn Brim en að honum hafi ekki þótt skyn­sam­legt að höfða mál.

Aðspurður hvort hann teldi að það væri spill­ing í sjáv­ar­út­vegi sagð­ist Guð­mundur oft lesa það í fjöl­miðlum. Hann upp­lifði hins vegar ekki spill­ingu í grein­inni. Flestir sem stýrðu útgerð­ar­fé­lögum væru mátt­ar­stólpar í sínum sam­fé­lögum og gagn­sæi ríkti um það hverjir héldu á nýt­ing­ar­rétti, hvernig hann væri nýttur og hvernig þeir ráð­stöf­uðu arð­inum af honum.

Lokuðu rannsókn og opnuðu rannsókn

Í gær var birt ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­runa Brims og tveggja minni sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, Kambs hf. og Grá­brókar ehf. Til­kynnt hafði verið um kaup Brims á hinum síð­ar­nefndu í októ­ber í fyrra. Þær voru báðar að stærstum hluta í eigu Hjálm­ars Þórs Krist­jáns­son­ar, bróður Guð­mundar.

Með ákvörð­un­inni var rann­sókn þess á þeim sam­runa lokið en til­kynnt var um aðra og mun stærri rann­sókn á því hvort að þeir bræð­ur, Guð­mundur og Hjálmar Þór, og félög þeirra hefðu í raun yfir­ráð yfir einu stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­æki lands­ins, Brim í skiln­ingi sam­keppn­islaga.

Nið­ur­staða frum­mats eft­ir­lits­ins er að slík yfir­ráð séu til stað­ar. Þ.e. að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, stærsti ein­staki eig­andi Brims, og tengdir aðilar hefðu stofnað til yfir­ráða í Brimi. Það hafi gerst í síð­asta lagi 8. sept­em­ber 2019.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi kaup Brims á Kambi og Grá­brók ekki kalla á frek­ari aðgerðir að sinni hálfu en boð­aði þess í stað að það myndi hefja sjálf­stæða rann­sókn á því hvort að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur og tengdir aðilar hefðu í raun myndað yfir­ráð í Brimi í skiln­ingi sam­keppn­islaga, líkt og frum­mat þess hefði leitt í ljós.

Umræddir tengdir aðilar eru, sam­kvæmt frummati eft­ir­lits­ins, áður­nefnt Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, Fiski­tangi ehf., KG Fisk­verskun og FISK- Seafood eign­ar­halds­fé­lag, sem í dag heitir RE-13 ehf.

Öll ofan­greind félög eru að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar og Hjálm­ars Þórs. Í byrjun sept­em­ber í fyrra áttu bræð­urnir báðir hlut í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur, sem hafði þá nýverið fest kaup á FISK-­Seafood eign­ar­halds­fé­lagi. Guð­mundur átti síðan Fiski­tanga og Hjálmar átti KG fisk­verk­un.

Ekk­ert bendi til vatnskila í sam­eig­in­legum hags­munum bræðr­anna

Dag­setn­ingin 8. sept­em­ber 2019 vísar til þess að þann dag keypti Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur Fisk-­Seafood, sem átti 10,78 pró­sent hlut í Brimi, af Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga. Það hafði keypt hlut­inn að mestu af líf­eyr­is­sjóðnum Gildi nokkrum vikum fyrr eftir að sjóð­ur­inn ákvað að selja sig út úr Brimi. Ástæða þess voru ítrekuð við­skipti Brims við stærsta hlut­hafa félags­ins, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur. Þann 8. sept­em­ber hvarf Kaup­fé­lagið svo út úr hlut­hafa­hópi Brims jafn skjótt og það birt­ist þegar Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur keypti allan hlut þess á tæp­lega átta millj­arða króna.

Eftir þessi við­skipti fór sam­eig­in­leg eign­ar­hlut­deild félaga í eigu bræðr­anna Guð­mundar og Hjálm­ars Þórs í Brimi í 49,29 pró­sent. Ef tekið var til­lit til hluta­fjár­hækk­unar í Brimi sem nota átti til að kaupa ákveðnar eignir af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur var sam­an­lögð hlut­deild þeirra 52,76 pró­sent, sam­kvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­in­u.

Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins væri ekk­ert sem benti til þess að „vatns­kil hefðu orðið í við­skipta­tengslum og sam­eig­in­legum hags­munum bræðr­anna Guð­mundar og Hjálm­ars Þór Krist­jáns­sona, enda þótt gripið hefði verið til ráð­staf­ana til að breyta ásýnd tengsl­anna. Þá benti rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til þess að þótt ein­ungis væri horft til hlut­deildar Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur, Fiski­tanga, Guð­mundar Krist­jáns­sonar og FISK-­Seafood eign­ar­halds­fé­lags í Brimi, þá kynni hún ein og sér að hafa verið nægj­an­leg til að við­halda yfir­ráðum aðil­anna.“

Þær ráð­staf­anir sem gripið var til, og Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi að hefðu breytt ásýnd tengsla bræðr­anna, voru fram­kvæmdar í des­em­ber 2019. Þá var greint frá því að Guð­mundur og Hjálmar Þór hefðu rofið fjár­hags­leg tengsl sín. Í því fólst að Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur keypti 33,3 pró­­sent hlut KG fisk­verk­unar í eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Krist­ján Guð­­munds­­son ehf., sem átti 37 pró­­sent í Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­vík­­­ur.

Þessi gjörn­ingur átti að aðskilja eign­ar­hald bræðr­anna á hlutafé í Brim­i.

Upp­lýstir um málið 28. apríl

Athuga­semdir Brims og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur vegna frum­mats­ins bár­ust Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu 13. mars 2020. Þar var frummati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um stofnun yfir­ráða Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og tengdra aðila í Brimi mót­mælt.

Þau mót­mæli hafa ekki talið mikið þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi ekki vera for­sendur til að taka end­an­lega afstöðu til mögu­legra yfir­ráða Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og tengdra aðila í Brimi. Aðilar máls­ins voru upp­lýstir um þetta á síma­fundi 28. apr­íl, eða á þriðju­dag í síð­ustu viku. Þar var þeim greint frá því að afstaða yrði tekin til þess hvort raun­veru­leg yfir­ráð hefðu skap­ast í Brim í sér­stöku máli þar rann­sakað yrði hvort að við mögu­lega myndun yfir­ráða í Brimi hafi verið fram­kvæmdur sam­runi af hálfu aðila í and­stöðu við sam­keppn­is­lög. Í þeirri rann­sókn verður aflað frek­ari sjón­ar­miða og gagna frá hlut­að­eig­andi aðil­um.

Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Tveimur dögum síð­ar, 30. apr­íl, var greint frá því að Guð­mundur Krist­jáns­son hefði sagt af sér sem for­stjóri Brims. Hann situr þó enn í stjórn félags­ins.

Sú útgerð sem heldur á mestu kvóta

Brim er sú útgerð sem heldur á mestum kvóta allra á Íslandi, eða 10,13 pró­­­sent, sam­kvæmt upp­færðum lista Fiski­stofu um sam­þjöppun afla­heim­ilda frá 31. mars síð­ast­liðn­um. Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­ur, sem á 44,65 pró­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­ur­­­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­­­sent af öllum afla­heim­ild­­­um.

Til við­­­bótar heldur útgerð­­­ar­­­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi hópur útgerða sem tengj­­ast Guð­­mundi er því með 15,19 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þá heldur KG Fisk­verk­un, að fullu í eigu Hjálm­ars Þórs, á 1,04 pró­sent alls kvóta.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að félög tengd bræðr­unum Guð­mundi og Hjálm­ari Þór haldi sam­eig­in­lega á um 16,91 pró­sent af heild­ar­afla­marki miðað við þorskígildi, þar af 0,68 pró­sentu­stig króka­afla­mark af heild­ar­afla­marki miðað við 31. mars 2020.

Hámark þess sem tengdir aðilar mega halda á sam­kvæmt lögum um stjórn fisk­veiða er tólf pró­sent.

Unnið hefur verið að úrbótum um þann hluta lag­anna sem snýr að skil­grein­ingu á tengdum aðilum frá því í byrjun árs í fyrra. Verk­efna­stjórn var mynduð og frum­varp um hluta til­lagna hennar kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda fyrr á þessu ári. Til stóð að leggja það fram á yfir­stand­andi þingi en það hefur nú verið tekið út af þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19. Hags­muna­sam­tök útgerða gagn­rýndu frum­varpið harð­lega, töldu það langt umfram efni og að það gengi gegn ákvæðum Mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið undanfarið ár