Silja Bára nýr formaður Jafnréttisráðs

For­sæt­is­ráð­herra, hefur skipað Dr. Silju Báru Ómars­dóttur, dós­ent við Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, sem for­mann Jafn­rétt­is­ráðs. Hún tekur við af Árelíu Eydísi Guð­munds­dóttur.

Silja Bára Ómarsdóttir
Silja Bára Ómars­dóttir Mynd: Aðsend mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað Dr. Silju Báru Ómarsdóttur sem formann Jafnréttisráðs. Hún tekur við af Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur. Hlutverk Jafnréttisráðs er að starfa í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera ráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum er tengjast jafnrétti kynjanna.

Sérstök áhersla á að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði

Silja Bára Ómarsdóttir er alþjóðastjórnmálafræðingur og dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hún sat í stjórnlagaráði og var formaður einnar af þremum starfsnefndum ráðsins. Silja Bára gaf út bókin ROF- Frásagnir kvenna af fóstureyðingum fyrir nokkrum árum ásamt Steinunni Rögnvaldsdóttur.

Eftir hverjar alþingiskosningar skipar ráðherra ellefu manna Jafnréttisráð sem á að vera Jafnréttisstofu og forsætisráðherra innan handar við faglega stefnumótun í málum er varða jafnrétti kynjanna. Á vef Stjórnarráðsins segir að ráðið eigi að leggja sérstaka áherslu á að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Þá skal Jafnréttisráð undirbúa jafnréttisþing í samráði við ráðherra og leggja fyrir það skýrslu um störf sín.

Aðalmenn Jafn­rétt­is­ráðs:

  • Dr. Silja Bára Ómars­dóttir, skipuð án til­nefn­ingar, for­maður
  • Maríanna Trausta­dóttir, til­nefnd af Alþýðu­sam­bandi Íslands, Banda­lagi háskóla­manna og Banda­lagi starfs­manna ríkis og bæja
  • Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, til­nefnd af Alþýðu­sam­bandi Íslands, Banda­lagi háskóla­manna og Banda­lagi starfs­manna ríkis og bæja
  • Pétur Reim­ars­son, til­nefndur af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og Samtökum atvinnu­lífs­ins
  • Einar Mar Þórð­ar­son, til­nefndur af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og Samtökum atvinnu­lífs­ins
  • Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, til­nefnd af Samtökum um kvenna­at­hvarf og Stíga­mótum
  • Jón Ingvar Kjaran, til­nefndur af Rann­sókna­stofnun í jafn­rétt­is­fræðum
  • Hróðmar Dofri Her­manns­son, til­nefndur af Félagi um for­eldra­jafn­rétti
  • Guðrún Þórð­ar­dóttir, til­nefnd af Femínista­fé­lagi Íslands, Kven­fé­laga­sam­bandi Íslands og Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands
  • Tatjana Latinovic, til­nefnd af Femínista­fé­lagi Íslands, Kven­fé­laga­sam­bandi Íslands og Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands
  • Anna Guðrún Björns­dóttir, til­nefnd af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár