Magnús í United Silicon: Þetta er slagur um eignarhald

Fyrr­verandi forstjóri United Silicon neitar því að hafa brotið lög, og segir nú sé farinn af stað barátta um eignar­hald kísil­verksmiðjunnar í Helguvík.

Magnús Ólafur Garðarsson, stofnandi og fyrr­verandi forstjóri United Silicon, hefur sent frá sér tilkynningu vegna kæru sem stjórn United Silicon lagði fram á hendur honum í gær vegna gruns um stórfelld auðgunar­brot og skjala­fals.

Vitnað er til hennar á vef Vísis, þar sem hann ítrekar meðal annars sakleysi sitt, og segir ásakanir á hendur honum með öllu tilhæfu­lausar.

Í frétt Vísis segir að þetta mál sé farið að snúast um baráttu um hlutaféð í United Silicon. „Arion Banki hefur farið með stjórn á félaginu síðan í vor, þar sem erfiðlega gekk að reka verksmiðjuna af tækni­legum ástæðum, auk þess sem það vantaði fé til þess að lagfæra hana og koma rekstrinum í lag. Arion Banki og hluthafar í hópi með bankanum komu að mestu leyti með það fé, en kröfðust þess í staðinn að taka völdin í félaginu. Það gerðu þeir með því að setja inn sína eigin stjórnar­menn. Ég samþykkti það og fór út úr stjórn félagsins til að greiða veginn til að laga það sem laga þurfti. Bankinn stoppaði hins vegar ekki þar og hefur hann í síðustu viku reynt að taka hlutabréf okkar einstaklinga sem hafa fjárfest í félaginu. Nú í þessari viku hef ég verið kærður fyrir eitthvað meint brot, sem ég get ekki ímyndað mér hvað er, enda hef ég ekki heyrt neitt um málið fyrr enn í gærkvöldi og þá í gegnum fjölmiðla. Það er augljóst að Arion Banki er að reyna að koma mér í eins lélega stöðu og mögulegt er, svo hann geti eignast allt félagið án þess að borga fyrir það. Þetta eru með skítugustu brögðum sem ég hef séð beitt í viðskipta­heiminum.

Ég bíð eftir að heyra hver þessi meintu brot eru, svo ég geti varið mig og sann­leikurinn komi fram. Ég er tilbúinn að vinna með stjórn félagsins og/eða héraðs­saksóknara til að lýsa málinu frá öllu hliðum,“ segir Magnús í tilkynningunni.

United Sil­icon rekur kís­­­­­il­­­­­málm­­­­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­­­­stöðvun 14. ágúst síð­­­­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­­­­leikar í rekstri kís­­­­­il­­­­­málm­­­­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­­­­leiðslu í nóv­­­­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­­­­ur­­­­­tek­inna bil­ana í bún­­­­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­­­­­ar­­­­­dómur í deilu félags­­­­­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­­­­­ins. Sam­­­­­kvæmt honum þarf United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­­­­­arð króna. Greiðslu­­­­stöðvun fyr­ir­tæk­is­ins var fram­­­­lengd í vik­unni og gildir nú fram í des­em­ber.

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­­ir. Alls nam fjár­­­­­­­fest­ing líf­eyr­is­­­­sjóða í verk­efn­inu um 2,2 millj­­­­örðum króna. Þar af fjár­­­­­­­festu þrír líf­eyr­is­­­­sjóðir sem eru í stýr­ingu hjá Arion banka í verk­efn­inu fyrir 1.375 millj­­­­ónir króna. Frjálsi líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ur­inn lagði til lang­stærstan hluta þeirrar upp­­­­hæð­­­­ar, eða 1.178 millj­­­­ónir króna. Hinir tveir sjóð­irnir eru Eft­ir­­­­launa­­­­sjóður félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­manna (EFÍA) og Líf­eyr­is­­­­sjóð starfs­­­­manna Bún­­­­að­­­­ar­­­­banka Íslands (LSBÍ). Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­un­­­­ar­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­stöðvum hans í Borg­­­­ar­­­­túni.

Alls skuld­ar United Sil­icon Arion banka um átta millj­­­arða króna. Auk þess færði bank­inn niður virði 16,3 pró­­senta hluta­fjár­­­eign sinnar í fyr­ir­tæk­inu í hálf­s­ár­s­­upp­­­gjöri sínu í síð­­asta mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár