Breytir engu þótt Assange hafi verið í ólögmætri refsivist

Julian Assange, forsprakki Wikileaks, hefur verið í ólögmætri refsivist eftir að hann hóf að halda til í sendiráði Ekvadors í London. Vinnu­hópur um óréttmæta refsivist komst að þeirri niður­stöðu, samkvæmt heimildum BBC. Opinber­lega verður greint frá niður­stöðunni á morgun. Þetta breytir því ekki að hann verður hand­tekinn af bresku lögreglunni ef hann yfirgefur sendi­ráðið.

Wikileaks-samtökin hafa sagt að þau bíði enn eftir formlegri tilkynningu um málið.

Assange flúði í sendi­ráðið árið 2012 til að komast hjá því að vera fram­seldur til Svíþjóðar, þar sem hans bíða ákærur um kynferðis­brot. Hann hefur óttast að vera fram­seldur þaðan til Banda­ríkjanna. Assange kvartaði til nefndarinnar árið 2014, á þeim forsendum að hann sé í raun fangi af því að hann getur ekki yfirgefið sendi­ráðið.

Formlega verður tilkynnt að hvaða niður­stöðu nefndin hefur komist á morgun. Assange greindi frá því seint í gærkvöldi að ef nefndin úrskurðar honum í óhag ætli hann að yfirgefa sendi­ráðið og láta handtaka sig. Ef hins vegar nefndin hafi úrskurðað honum í hag búist hann við því að fá vegabréf sitt strax í hendurnar og að handtöku­skipan á hendur honum verði felld úr gildi.

Handtöku­skipun á hendur honum er enn í gildi, og ákvörðun nefndar Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagalegt gildi. Bresk stjórn­völd segja hins vegar að niður­staðan breyti engu, Assange sé enn eftir­lýstur vegna nauðgunar í Svíþjóð og því beri breskum stjórn­völdum að framselja hann. Sænsk stjórn­völd hafa látið tvö mál gegn honum niður falla, en alvarlegasta málið er enn í gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár