KSÍ: Ekkert landslið mun leika við Rússa

Knattt­spyrnu­sam­band Íslands hefur ákveðið að sniðganga kappleiki við Rússa vegna innrás­ar­innar í Úkraínu.

Sniðganga Rússa
Snið­ganga Rússa Landslið íslands í knatt­spyrnu munu ekki mæta Rússum né Hvít-Rússum á meðan á hern­að­inum í Úkraínu stendur. Mynd: AFP

Stjórn Knattspyrnu­sambands Íslands ákvað á fundi sínum nú fyrir stundu að ekkert íslenskt knattspyrnu­landslið muni leika við landslið frá Rússlandi á meðan á hernaði Rússa í Úkraínu stendur. Það sama verður látið gilda um landslið Hvíta-Rússlands vegna stuðnings þeirra við innrásina.

Ákvörðunin var tekin á fyrsta fundi nýrrar stjórnar, sem kjörin var um liðna helgi. Ákvörðun um að ekki verðir leikið við Rússa nær meðal annars til þeirra leikja sem framundan eru í Þjóða­deild Knattspyrnu­sambands Evrópu (UEFA) en til stóð að karla­landsliðið mætti Rússum í júlí. Engu skiptir, segir í yfir­lýsingu KSÍ, þó rússneska liðið leiki ekki undir nafni eða fána Rússlands. Alþjóða­knattspyrnu­sambandið (FIFA) gaf út að Rússum væri óheimilt að leika á heima­velli, með áhorf­endum, undir fána eða nafni Rússlands en að öðru leyti hefur ekki verið tekin ákvörðun um frekari aðgerðir gegn Rússum.

Þá munu íslensk landslið heldur ekki mæta Hvít-Rússum í Hvíta-Rússlandi á meðan á hernaðinum stendur, í ljósi stuðnings Hvíta-Rússlands við hernað Rússa. Nær sú ákvörðun meðal annars til leiks kvenna­lands­liðsins sem fram átti að fara í Hvíta-Rússlandi í mars­mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár