Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar hættir og verður kynningarstýra UN Women

Aðstoðar­maður formanns Viðreisnar til fjögurra ára hefur látið af störfum og tekur við starfi kynningar­stýru UN Women á Íslandi – „Elsku Þorgerður - takk fyrir allt.“

María Rut Kristinsdóttir.
María Rut Krist­ins­dóttir.

María Rut Kristins­dóttir hefur látið af störfum sem aðstoðar­maður Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur, formanns Viðreisnar, og tekið við starfi kynningar­stýru UN Women á Íslandi.

María Rut hefur verið aðstoðar­maður Þorgerðar í rúmlega fjögur ár. Í færslu á Facebook segir María Rut að síðustu fjögur ár hafi verið „ofboðs­lega lærdómsrík en fyrst og fremst fáránlega skemmtileg.“

María Rut segir nýtt tækifæri hafa bankað upp á sem hún gat ekki hafnað. Sem kynningar­stýra UN Women mun hún leiða starf kynningar­mála og kynningar­sviðs samtak­anna, hafa umsjón með átaks­herferðum og samskiptum við fjölmiðla.

Áður en María Rut tók við starfi aðstoðar­manns Þorgerðar Katrínar starfaði hún sem sérfræðingur á sviði mann­réttinda­mála á skrif­stofu mann­réttinda- og sveita­félaga í innan­ríkis­ráðuneytinu og leiddi þar samráðshóp ráðherra um meðferð kynferðis­brota innan réttar­vörslu­kerfisins. Hún kom einnig að ýmsum öðrum verkefnum innan innan­ríkis- og dómsmála­ráðuneytisins, þar með talið full­gildingar­ferlis Istanbúlssamningsins. María hefur jafnframt verið virk í ýmsum félags­störfum m.a. sem formaður Stúdenta­ráðs Háskóla Íslands, talskona Druslu­göngunnar og vara­formaður Samtak­anna '78.

Í færslu sinni þakkar María Rut Þorgerði fyrir samstarfið. „Og elsku Þorgerður - takk fyrir allt. Traustið, samvinnuna, áskorunina og vináttuna. Ég sé þig á dans­gólfinu á Kíkí“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár