Enginn lagði rétt í stæði

Starfs­maður Advania smellti af skoplegri mynd sem sýnir hvernig enginn lagði rétt í stæði í óveðri síðustu viku.

Í óveðri undan­farinna vikna hefur mörgum reynst erfitt að athafna sig í umferðinni.  Það sést glögglega á þessari mynd af bíla­stæðinu við Guðrúnartún 10 í síðustu viku þar sem fjölda ökumanna mistókst að leggja rétt í stæði.

Það var Hákon Jónsson, starfs­maður Advania, sem smellti af myndinni og birti í Facebook hópnum „Verst lagði bíllinn“ fyrir helgi. Vakti hún mikla ánægju meðlima hópsins.

„Það var snjór þegar fólkið mætti, en svo kom rigning og stæðin birtust undir bílunum svona,“ segir Hákon, en hann bendir á að Vega­gerðin deili stæðunum með Advania.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár