Samherji Ísland hagnaðist um fjóra milljarða eftir að hafa greitt 470 milljónir í veiðigjöld

Útgerð­ar­fé­lag í eigu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, sem heldur á rúm­lega átta pró­sentum af öllum úthlut­uðum kvóta, hagn­að­ist um rúman millj­arð króna á kvóta­leigu í fyrra. Veiði­gjöldin sem félagið greiddi náðu ekki að vera helm­ingur þeirrar upp­hæðar.

Landvinnsla Samherja á Dalvík.
Land­vinnsla Samherja á Dalvík. Mynd: Skjáskot

Samherji Ísland, útgerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki að öllu leyti í eigu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, hagn­að­ist um næstum fjóra millj­arða króna á árinu 2021, ef miðað er við með­al­gengi evru á síð­asta ári, en útgerðin gerir upp í þeirri mynt. Alls gerir Samherji Ísland út sex skip og rekur land­vinnslu á Dalvík.

Útgerðin er með fjórðu mestu afla­hlut­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­sögu allra sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­­sent, sam­kvæmt síð­ustu birtu tölum.

Í árs­reikn­ingi félags­ins sem er nú aðgengi­legur í fyr­ir­tækja­skrá kemur fram að rekstr­ar­hagn­aður hafi verið um 4,6 millj­arðar króna, en þá var búið að gera ráð fyrir greiðslu veiði­gjalda upp á um 470 millj­ónir króna sem hluta af kostn­að­ar­verði seldra vara. Samherji Ísland borg­aði svo um 900 millj­ónir króna í tekju­skatt. Samtals fóru því tæp­lega 1,4 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs frá félag­inu á árinu 2021.

Stjórn Samherja Ísland ákvað að greiða út 40 pró­sent af hagn­aði árs­ins í arð vegna síð­asta árs, sem eru þá um 1,6 millj­arðar króna. Greidd veiði­gjöld voru því undir 30 pró­sent af arð­greiðsl­unni sem greidd var upp í móð­ur­fé­lagið Samherja hf.

Færðu Samherja hf. til barnanna

Til­­kynnt var opin­ber­­lega um eig­enda­­skipti á Sam­herja hf. 15. maí 2020. Þá birt­ist til­­kynn­ing á heima­­síðu Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar um að Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, Helga S. Guð­­munds­dóttir og Krist­ján Vil­helms­­son væru að færa næstum allt eign­­ar­hald á Sam­herja hf., sem er eign­­ar­halds­­­fé­lag utan um þorra starf­­semi sam­­stæð­unnar á Íslandi og í Fær­eyj­um, til barna sinna. Sú til­færsla átti sér þó stað á árinu 2019.

Þau halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eim­­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­­ar­halds­­­fé­lagi, Sam­herja Holding ehf. Heild­ar­hagn­aður Samherja hf. á síð­asta ári var sagður 17,8 millj­arðar króna í til­kynn­ingu sem birt­ist á heima­síðu félags­ins í sumar. Sam­stæðan á fjölda félaga auk Samherja Íslands og er auk þess stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar.

Stærsti eig­andi Sam­herja hf. í dag er félagið K&B ehf., sem er í 2,1 pró­­sent eigu Þor­­steins Más, for­­stjóra Sam­herja, 49 pró­­sent eigu Bald­vins Þor­­steins­­son­­ar, sonar hans, og 48,9 pró­­sent eigu Kötlu Þor­­steins­dótt­­ur, dóttur Þor­­steins Más. Það á 44,1 pró­­sent í félag­inu. Félagið Bliki ehf., sem Samherji á sjálfur 32,1 pró­sent í og flokk­ast þar með sem dótt­ur­fé­lag sam­stæð­unnar, er næst stærsti ein­staki eig­and­inn með 11,9 pró­sent hlut. Samherji keypti 10,3 pró­sent hlut í Blika í fyrra auk þess sem dótt­ur­fé­lagið Fram­in­vest Sp/f á 28,2 pró­sent eign­ar­hlut í Blika. Kross­eigna­tengsl félag­anna eru færð út til lækk­unar á eigin fé í reikn­ingum Samherja. Þor­­­­steinn Már er helsti skráði stjórn­­­­andi Fram­in­vest sp/f, sem er með heim­il­is­festi í Fær­eyj­­­­um.

Hall­­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín, börn útgerð­ar­stjór­ans Krist­jáns Vil­helms­son­ar, eiga sam­an­lagt með um 41,5 pró­­sent hluta­fjár en ekk­ert þeirra meira en 8,5 pró­sent hlut hvert.

Miklar tekjur af kvótaleigu

Samherji Ísland heldur á afla­heim­ildum sem eru bók­færðar á um tíu millj­arða króna. Upp­lausn­ar­verð þeirra er þó án efa mun hærra, en afla­heim­ildir eru oftar en ekki bók­færðar á mun lægra virði en mark­aðsvirði í árs­reikn­ingum útgerða.

Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að þorri tekna þess hafi verið vegna veiða og vinnslu í fyrra. Þó er til­tekið að kvóta­leiga hafi skilað Samherja Íslandi rúm­lega millj­arði króna í tekjur í fyrra, miðað við með­al­gengi evru á því ári.

Því hafði Samherji Ísland rúm­lega 600 millj­ónum krónum meira í tekjur af því að leigja út kvóta en félagið greiddi í veiði­gjöld á síð­asta ári. Tekjur þess af kvóta­leigu rúm­lega tvö­föld­uð­ust milli ára.

Samherji hefur brugð­ist við frétta­flutn­ingi Kjarnans og bent á að Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga og Samherji Ísland, sem bæði séu sjálf­stæð félög en að öllu leyti í eigu Samherja hf., samnýti veiði­heim­ildir til að afla hrá­efnis til vinnslu á Dalvík og Akureyri. „Við­skipti milli þess­ara félaga, m.a. með veiði­heim­ildir, eiga að vera gagnsæ og frá þeim ber að greina svo sem gert er í reikn­ingum félag­anna. Félögin eru jafn­framt sam­sköttuð. Hér er því ekki um raun­veru­legar leigu­greiðslur til þriðja aðila að ræða heldur inn­byrðis við­skipti innan Samherja hf. sem ber að greina frá með þessum skil­merki­lega hættí.”

Í árs­reikn­ingnum er reiknað út svo­kallað virkt skatt­hlut­fall félags­ins. I því felst að 20 pró­sent fyr­ir­tækja­skattur er lagður saman við ófrá­drátt­ar­bæran kostnað, mis­mun á áætl­uðum og álögðum sköttum og svo er geng­is­munur dregin frá, ef hann er jákvæður, líkt og hann var í fyrra hjá Samherja Íslandi. Miðað við þessa útreikn­inga var virkur tekju­skattur félags­ins 18,6 pró­sent á árinu 2021 og lækk­aði úr 25,1 pró­sent árið áður, þegar gegn­is­munur var nei­kvæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár