Hagnaður Samherja nam 17,8 milljörðum

Hagnaður Samherja hf. og hlut­deild­ar­fé­laga jókst um 10 millj­arða á milli ára og nam 17,8 millj­örðum á síð­asta ári. Þar af námu sölu­hagn­aður af sölu Síld­ar­vinnsl­unnar hf. auk hlut­deildar í afkomu hennar 9,7 millj­örðum króna.

Í ræðu á aðalfundi félagsins gerði Þorsteinn Már Vilhelmsson forstjóri rannsókn á starfsemi Samherja í Namibíu að umræðuefni sínu.
Í ræðu á aðal­fundi félags­ins gerði Þor­steinn Már Vil­helms­son for­stjóri rann­sókn á starf­semi Samherja í Namibíu að umræðu­efni sínu. Mynd: Samherji

Hagnaður Samherja hf. á árinu 2021 nam alls 17,8 millj­örðum króna í sam­an­burði við 7,8 millj­ónir á árinu 2020. Þetta kemur fram í árs­upp­gjöri Samherja sem kynnt var á aðal­fundi á Dalvík 19. júlí síð­ast­lið­inn og greint er frá í til­kynn­ingu.

[links]Þar segir að hagn­aður af starf­semi Samherja eftir skatta hafi numið 5,5 millj­örðum króna á árinu 2021 til sam­an­burðar við 4,5 millj­arða árið áður. Þá hafi sölu­hagn­aður af hluta­bréfum félags­ins í Síld­ar­vinnsl­unni hf., auk hlut­deildar í afkomu síð­asta árs, hafi numið 9,7 millj­örðum króna, og sölu­hagn­aður og hlut­deild Samherja í afkomu ann­arra hlut­deild­ar­fé­laga en Síld­ar­vinnsl­unni numið 2,6 millj­örðum króna.

Eignir Samherja í árs­lok 2021 námu 128 millj­örðum króna og eigið fé 94,3 millj­örðum, en í til­kynn­ing­unni segir að efna­hagur félags­ins sé traustur, sem sé mik­il­vægt fyrir upp­bygg­ingu og fyr­ir­hug­aðar fjár­fest­ingar félags­ins í fisk­eldi. Þá var ákveðið á aðal­fundi félags­ins að greiða ekki arð og beina fjár­fest­ing­ar­styrk félags­ins inn í ný verk­efni.

[adspot]Í ræðu á aðal­fundi félags­ins gerði Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri rann­sókn á starf­semi Samherja í Namibíu að umræðu­efni sínu og sagði mik­il­vægt að halda því til haga að engir starfs­menn á þeirra vegum hafi verið ákærðir né að óskað hafi verið eftir fram­sali á þeim. Raunar sé hvorki félagið né starfs­menn þess „aðilar að refsi­mál­inu sem rekið er gegn aðilum í Namibíu“. Þeir hafi hins vegar setið í fang­elsi í tvö og hálft ár án dóms.

Sannfærður um að orðspor Samherja verði hreinsað

„Rannsókn hér á landi hefur einnig staðið yfir í tvö og hálft ár án þess að nokkuð hafi komið fram sem gefur til­efni til að stimpla ein­staka starfs­menn Samherja hf. sak­born­inga. Félagið hefur brugð­ist við þessum málum með ýmsum hætti og mun halda áfram að verja sak­leysi sinna starfs­manna sem ég er sann­færður um að verða hreins­aðir að öllum ásök­unum þegar upp er staðið. Í þessu sam­bandi er ánægju­legt að geta und­ir­strikað að sam­starfs­að­ilar okkar um allan heim hafa haldið tryggð við okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár