Samherji hagnaðist um 7,8 milljarða króna í fyrra og á eigið fé upp á 78,8 milljarða

Annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, sem heldur utan um þorra inn­lendrar starf­semi hennar, hagn­að­ist vel á síð­asta ári. Eign­ar­hald á henni var fært að hluta til barna helstu stjórn­enda Samherja á árinu 2019.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Samherji

Hagnaður Samherja hf. var 7,8 millj­arðar króna á árinu 2020. Eigið fé félags­ins, sem heldur utan um inn­lendan rekstur Samherja, starf­sem­ina í Færeyjum auk eign­ar­hluta í nokkrum skráðum félögum, var sam­tals 78,8 millj­arðar króna í lok árs og eig­in­fjár­hlut­fallið 72 pró­sent.

Þrátt fyrir heims­far­aldur voru rekstr­ar­tekjur Samherja 46,5 millj­örðum króna á árinu 2020 sam­kvæmt rekstr­ar­reikn­ingi.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Sam­herj­a.

Til­kynnt var opin­ber­lega um eig­enda­skipti á Sam­herja hf. 15. maí í fyrra. Þá birt­ist til­kynn­ing á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar um að Þor­steinn Már Bald­vins­son, Helga S. Guð­munds­dóttir og Krist­ján Vil­helms­son væru að færa næstum allt eign­ar­hald á Sam­herja hf., sem er eign­ar­halds­fé­lag utan um þorra starf­semi sam­stæð­unnar á Íslandi og í Fær­eyj­um, til barna sinna. Sú til­færsla átti sér þó stað á árinu 2019.

Þau halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eim­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­ar­halds­fé­lagi, Sam­herja Holding ehf.

[adspot]Stærsti eig­andi Sam­herja hf. í dag er félagið K&B ehf., sem er í 2,1 pró­sent eigu Þor­steins Más, for­stjóra Sam­herja, 49 pró­sent eigu Bald­vins Þor­steins­son­ar, sonar hans, og 48,9 pró­sent eigu Kötlu Þor­steins­dótt­ur, dóttur Þor­steins Más. Það á 43,1 pró­sent í félag­inu. Hall­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín, börn útgerð­ar­stjór­ans Krist­jáns Vil­helms­sonar, eiga sam­an­lagt með um 41,5 pró­sent hluta­fjár en ekk­ert þeirra meira en 8,5 pró­sent hlut hvert. Þar á eftir kemur félagið Bliki ehf. með 11,9 pró­­sent hlut. Fram­In­vest Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­­­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Fær­eyj­­­um. Þor­­­steinn Már er helsti skráði stjórn­­­andi þess félags.

Sam­herji Holding, hinn helm­ingur sam­stæð­unn­ar, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árin 2019 og 2020. Sam­herj­a-­sam­stæðan átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok árs 2018. Hagn­aður Sam­herja, þegar bæði Sam­herji hf. og Sam­herji Holding voru talin sam­an, vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­­örðum króna.

Hagn­aður Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar hafði numið yfir 112 millj­­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka árs 2018. Síðan þá hafa að minnsta kosti 17 millj­arðar króna bæst við vegna afkomu Samherja hf., en óljóst er hversu miklum hagn­aði Samherji Holding hefur skilað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár