Kalla eftir breiðfylkingu gegn tilraunum Samherja

Þörf er á breið­fylkingu gegn tilraunum Samherja til að grafa undan samfélags­sáttmálanum og þeim gildum sem hann byggir á, að mati Íslands­deildar Transparency International. Tilefnið er afhjúpun á „skæruliða­deild“ útgerð­ar­innar.

Í yfir­lýsingu sem samtökin birtu í dag er kallað eftir breið­fylkingu almennings, félaga­samtaka, stéttar­félaga, samtaka uppljóstrara, fræða­samfélags, stjórn­málanna og allra þeirra sem vettlingi gegn þessum tilraunum útgerðar­fyrir­tækisins. 

Tilefni tilkynningarinnar er umfjöllun Stundarinnar og Kjarnans um „skæruliða­deild“ Samherja. Þar kom meðal annars fram að almanna­tengill á snærum Samherja og innan­húslögmaður fyrir­tækisins hafi notað skip­stjóra til að leppa skrif sem birst hafa til varnar fyrir­tækisins á síðustu mánuðum. Skrif sem hafa haft þann megin­tilgang að grafa undan trúverðug­leika þeirra blaða­manna sem fjallað hafa um Samherja­skjölin svokölluðu.

„Skæru­liðarnir“ beindu sjónum sínum líka að þeim sem gagnrýnt höfðu fyrir­tækið. Svo sem Íslands­deild Transparency International, sem áður hefur birt harðorðar yfir­lýsingar vegna framferðis Samherja. 

Fyr­ir­tæki sem eru með­vituð um almanna­hag þurfa ekki „skæru­liða­deild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið“
Íslands­deild Transparency International

„Fyrirtæki sem hafa ekkert að fela stunda ekki árásir á fólk sem berst fyrir bættu samfélagi og almanna­heill. Fyrirtæki sem eru meðvituð um almannahag þurfa ekki „skæruliða­deild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið“,“ segir í yfir­lýsingu Transparency International, þar sem vitnað er til samskipta Samherja­fólks sem afhjúpuð voru í Stundinni síðastliðinn föstudag. 

Samtökin kalla eftir því að stjórn­málamenn láti í sér heyra. 

„Stjórn­málamenn og sérstak­lega stjórnar­liðar geta ekki lengur komið sér undan því að takast á við hið pólitíska og kerfis­læga umhverfi sem umber svona framgöngu árum sama,“ segir í yfir­lýsingunni og því bætt við að annað hvort séu stjórn­málamenn með almenningi í barátt­unni gegn spillingu eða á móti með þögn, meðvirkni, aðgerðar­leysi og seinagangi við að koma upp nútíma­legum spillingar­vörnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár