Útgjöld til rannsókna og þróunar enn lítil

Samkvæmt tölum Hagstofu hafa útgjöld til rannsókna og þróunar aukist töluvert á síðustu sjö árum sem hlutfall af lands­framleiðslu. Hins vegar teljast þau lítil ef litið er lengur aftur í tímann og ef útgjöldin eru borin saman við hin Norður­löndin.

Heildar­útgjöld til rannsókna og þróunar námu 2,5 prósentum af lands­framleiðslu í fyrra og er það hæsta hlutfall sem mælst hefur hérlendis frá árinu 2010. Ef tekið er tillit til lands­framleiðslu er þetta þú nokkuð undir meðal­útgjöldum hinna Norður­landa og minna en útgjöldin hérlendis á árunum 2000-2007.

Mun minni stuðningur eftir hrun

Hagstofan greindi frá því í gær að hlutfall útgjalda til rannsókna- og þróunar­starfs af lands­framleiðslu hérlendis í fyrra hafi verið það hæsta sem mælst hafi frá því að Hagstofa Íslands tók við umsjón tölfræðinnar árið 2014. Þau námu alls 70,8 milljörðum króna árið 2020, sem er rúmlega tvöfalt meira en heildar­upphæð útgjald­anna árið 2013.

Í gagna­banka Efnahags- og framfara­stofnunarinnar (OECD) má hins vegar finna tölur um þessi útgjöld alveg aftur til ársins 2000. Samkvæmt þeim námu útgjöldin að meðaltali um 2,7 prósentum af lands­framleiðslu á árunum 2000-2007 og var það sambærilegt hlutfall og á hinum Norður­löndunum. Saman­burðinn má sjá á mynd hér að neðan.

Í kjölfar efnahags­hrunsins lækkaði þó framlagið hérlendis töluvert, úr 2,5 prósentum af lands­framleiðslu árið 2007 niður í 1,7 prósent árið 2013. Á sama tíma voru útgjöldin á hinum Norður­löndunum nokkuð stöðug, en þar hafa þau að meðaltali verið 2,8 prósent af lands­framleiðslu á síðustu 13 árum.

Útgjöldin í mála­flokknum hérlendis í fyrra eru því bæði undir meðaltali hinna Norður­landanna og undir meðal­útgjöldum hérlendis á árunum fyrir hrun, ef þau eru mæld sem hlutfall af lands­framleiðslu.

Haldið uppi af fyrirtækjum

Samkvæmt tölum Hagstofu standa fyrirtæki að baki 80 prósent af útgjalda­aukningunni frá árinu 2013, en þau hafa aukið árleg útgjöldin sín í mála­flokknum um 30 milljarða króna. Á sama tíma hafa árleg útgjöld háskóla­stofnana aukist um 8 milljarða króna, en aukningin hefur einungis numið 179 milljónum króna hjá öðrum opinberum stofnunum.

Ef tekið er tillit til hagvaxtar hefur framlag háskóla og annarra opinberra stofnana til nýsköpunar nokkurn veginn staðið í stað á síðustu árum, en samanlagt hafa þau verið á bilinu 0,7 til 0,8 prósent af lands­framleiðslu. Á sama tíma hafa fyrirtæki næstum því tvöfaldað sitt hlutfall, úr 0,9 prósentum upp í 1,7 prósent af lands­framleiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár